Misjafnar skoðanir eru á því hvenær konur eigi að byrja að bera á sig augnkrem til að draga úr hrukkumyndun með aldrinum. Sumir segja að það eigi að vera fyrir tvítugt, aðrir segja að það eigi að vera á þrítugsaldrinum og enn aðrir segja á fertugsaldrinum. Samkvæmt Stylelist er besta að byrja sem fyrst.
Talað var við Rebeccu Baxt lækni sem segir í viðtali við blaðið að stúlkur og konur eigi að byrja að bera á sig augnkrem á táningsaldrinum. Augnkrem heldur raka í húðinni og það er það sem gerir fólk unglegra því ef húðin er þurr verða hrukkur dýpri og auðsjáanlegri.
Ef konur eru að leita sér að augnkremi þá segir annar læknir í viðtali við blaðið að konur eigi að skoða innihaldslýsinguna og velja krem sem eru með eftirtöldum efnum í:
- Caffeine – Það minnkar þrota og eykur blóðflæði
- Peptides – Stuðlar að myndun kollagen
- Antioxidants – Kollagenstyrkjandi
- Brighteners – Lýsir upp dökka litinn undir augunum
- Silicone/Dimethicone – Styrkir húðina og mýkir hana áður en þú setur farða á

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi