Ósiðir fjölskyldunnar

5 atriði sem mælt er gegn því að tileinka sér

Eitt af því besta í lífinu er að vera hluti af góðri og heilsteyptri fjölskyldu. Fjölskyldur fara minnkandi með hverju árinu meðal annars vegna þess að fólk einbeitir sér frekar að frama og öðru slíku.

LadyZona tók saman 5 atriði yfir ósiði hjá fjölskyldum og mælir með að fólk hætti þeim sem fyrst:

1. Verja ekki tíma saman

Það er mjög mikilvægt fyrir fjölskylduna að eiga tíma saman og það ætti að vera í það minnsta klukkustund á dag. Spjallið um daginn og sýnið hvert öðru áhuga.

2. Skipulagsleysi

Hafið lista yfir hlutverk hvers og eins í heimilisverkunum og passið þannig upp á að allir taki þátt.

3. Borða fyrir framan sjónvarpið

Ekki borða fjölskyldukvöldverðinn fyrir framan sjónvarpið. Það dregur verulega úr samskiptum og fjölskyldutengslum.

4. Samgleðjast ekki

Það á ekki bara að vera gaman um jól og áramót. Það má fagna við fleiri tilefni eins og góðum einkunnum, vinningum og fleira. Þarf ekki að vera merkilegt en það skilur eftir sig minningu sem gaman er að eiga.

5. Öskur og læti

Það leysir enginn vandamál með því að öskra og garga. Kennið börnunum að það er hægt að útkljá mál án þess að hækka róminn.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.