Ertu með gráa fiðringinn?

Karlmenn gera sér grein fyrir að þeir eru hálfnaðir með ævi sína

Það hafa allir heyrt um gráa fiðringinn og oft er talað um að grái fiðringurinn sé breytingarskeið karlmannsins og er þetta tímabil einhversstaðar á milli 35 og 50 ára og varir í 3- 10 ár hjá hverjum fyrir sig. Það eru skiptar skoðanir á því hversu raunverulegt þetta fyrirbæri sé en sumir vilja meina að þetta geti tengst hormónaframleiðslu karla eins og tíðahvörf kvenna gera. Gjarnan er gert grín að mönnum sem kaupa sér sportbíla eða mótorhjól eftir fertugt og þá er talað um að þeir séu haldnir gráa fiðringnum.

Ólíklegt að fá gráa fiðringinn í Japan

Það fá alls ekki allir gráa fiðringinn en samkvæmt rannsókn sem framkvæmd var árið 1980 er aðeins 10% manna sem fá hann og sumar rannsóknir hafa sýnt að sumir menningarheimar eru viðkvæmari en aðrir. Til dæmis er fólk frá Japan og Indlandi mjög ólíklegt til að fá gráa fiðringinn og það hlýtur að vekja upp þá spurningu hvort þetta fyrirbrigði sé eitthvað sem hefur verið búið til í ákveðnum menningarheimum.

Örvænting og eftirsjá

Þetta tímabil hefst um miðbik ævinnar eða um það leyti þegar karlmenn gera sér grein fyrir að þeir eru hálfnaðir með ævi sína, að þeir eru dauðlegar verur og að einn daginn muni „þetta allt“ taka enda. Þessu fylgir oft mikil örvænting, þeim finnst þeir hjálparvana, óvelkomnir og hafa lítilvægt hlutverk í þessu lífi. Eins getur eftirsjá og breytingar spilað inn í þetta sem getur hellst yfir menn á þessu tímapunkti. Það getur verið vegna ýmissa hluta eins og til dæmis vinnu og starfsframa, hjónabands, börnin eru að flytja að heiman, foreldrar farnir að falla frá og svo framvegis.

Í kjölfar alls þessa fara margir karlar að breyta lífi sínu, breyta um lífstíl og eignast ný markmið og sumir breyta meiru en aðrir og kynnast nýrri konu og skilja þá jafnvel við konuna sína eða segja upp vinnunni sinni til margra ára.

Ekkert sérstakt að keppa að

Á heimasíðunni persona.is er þetta skrifað um gráa fiðringinn: „Sumir líta á þetta sem breytingaskeið sambærilegt við það sem verður hjá konum á þessum aldri. Sönnu nær er að á þessu æviskeiði hafa ýmsar félagslegar breytingar áhrif á hjónabandið, fjölskyldulífið og stöðu makanna sín á milli. Börnin eru uppkominn, fjölskyldan hefur komið sér upp íbúð eða húsi, skuldirnar eru orðnar viðráðanlegar og afkoman góð. Oftast hefur karlinn fundið sér bás í varanlegu lífsstarfi og það er ekki að neinu sérstöku að keppa. Að hinu leytinu kann honum að hafa mistekist að ná þeim markmiðum sem hann keppti að. Hann stendur á tímamótum. þetta skapar óróleika í sálinni, sem getur komið fram í því að hann leitar á ný mið.“

Á heimasíður lifetwo.com er farið vel og vandlega í gegnum hvernig þekkja á gráa fiðringinn. Hér verður stiklað á stóru í þeim lista:

– Breytingar breytinganna vegna

Maðurinn er eirðarlaus og líður eins og hann sé að renna út á tíma. Þeir verða allt í einu óánægðri með allt sem þeir hafa gert hingað til, til dæmis hætta að hugsa um stöðuhækkunina sem þeir hafa stefnt svo lengi að.

– Óúthugsaðar ákvarðanir og hvatvís hegðun/sérstaklega þegar kemur að peningum eða frama

Karlmaðurinn getur allt í einu haft mikinn áhuga á hlutum sem hann hefur ekki áður spáð í. Til dæmis gæti allt í einu þótt mjög eðlilegt að kaupa sportbíl þrátt fyrir að það sé alls ekki í takt við fjárhag fjölskyldunnar. Honum gæti líka þótt það lífsnauðsynlegt að hætta í vinnunni sinni sem hann var nokkuð ánægður með, fyrir nokkrum mánuðum.

– Fer að efast allt í lífinu

Hann getur farið að upplifa hversdagsleg verk og skyldur sem birði á sér og vinnan, fjölskyldan og allt annað í lífi hans virðist honum sem endalaus röð krafna á þeirra hálfu.

– Breyting í kynlífinu

Karlmaðurinn getur virst áhugalaus, hvort sem fyrir því séu andlegar eða líkamlegar orsakir.

– Mikill áhugi á útliti sínu

Maðurinn eyðir miklu lengri tíma en áður við spegilinn, fer að kaupa sér mikið af nýjum fötum, fær sér nýja klippingu og er allt í einu mjög annt um hvernig hann lítur út.

– Meiri alkóhólneysla

Hvað sem veldur því, þunglyndið, áhyggjurnar, eða eitthvað annað, þá eru margir sem halla sér að flöskunni þegar þeir finna fyrir fylgikvillum gráa fiðringsins.

– Meiri svefn, minni matarlyst, almennt slen

Þetta eru allt merki um þunglyndi sem getur fylgt gráa fiðringnum

Algeng einkenni breytingarskeiðs karla

Minnkandi kynhvöt

Þreyta

Hármissir

Breyttur líkamsvöxtur

Vöðvar rýrna

Fitumagn líkamans eykst

Aukin Svitamyndun

Verkir um líkamann

Pirringur

Aukin svitamyndun

Verkir um allan líkamann

Depurð

Þunglyndi


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.