Snyrtivöruframleiðandinn Bliss hefur nú sett á markaðinn línu sem á að hjálpa þér að grennast. Eitt kremið í þessari línu heitir FatGirlSixpack og er það, eins og nafnið gefur til kynna að koma þér einu skrefi nær því að fá „þvottabrettamaga“.
Í kreminu eru efni sem stuðla að því að tóna og stinna líkamann, til dæmis koffín, amínósýrur, kreatín, mentól og fleira.
Ofan á flöskunni eru svo kúlur sem notaðar eru til að nudda kreminu á magann og á að gera það tvisvar á dag í 20 til 30 sekúndur í einu. Einnig er mælt með hollu mataræði og reglulegum æfingum.
Ein svona túba er ekki gefins því hún kostar tæpar 5000 krónur og í hverri túbu eru 145 millilítrar. Það eru fleiri vörur í þessari línu, til dæmis, FatGirlScrub, FatGirlSleep, FatGirlSlim og LoveHandler og allt eru þetta krem sem ætluð eru til að bæta útlit kvenna og öll efnin kosta um 4500- 5000 krónur. Þessi lína fæst ekki ennþá á Íslandi en hægt er að versla hana á netinu.
Í samtali við Ingunni hjá Trimformi Berglindar sagði hún: „Það eru til krem sem virka vel til að stinna húðina en ekkert krem hefur stækkandi áhrif á vöðvana.“

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013