Ofsafengin viðbrögð vegna sundfatamyndar blaðakonu

„Ég er falleg“

„Líkami minn er ekki fallegri en annarra, en hann er jafn fallegur. Ég er falleg,“ skrifar sænska blaðakonan Linda Marie á bloggsíðu sína þar sem hún skrifar um reynslu sína eftir að hafa birt mynd af sér á sundfötunum einum klæða á samfélagsmiðlinum Facebook. Fimm klukkutímum eftir að hún hafði birt myndina hafði hún fengið 46 þúsund „læks“, þúsund tölvupósta og tvö þúsund athugasemdir.

Myndina tók hún fyrir þremur árum en hún segist hafa fengið svo mikil viðbrögð sökum þess að hún þótti ekki nógu álitleg til að vera birta myndir af sér á baðfötunum einum klæða. Hún segist vera fremur sorgmædd vegna þessara viðbragða.

„Fyrir það fyrsta þá er ég sorgmædd yfir því að stúlkur sem líta út eins og ég þora ekki að sýna hversu fallegar þær eru,“ segir Linda Marie. Hún segir að þrátt fyrir alla umræðu um að allir séu fallegir á sinn hátt þá sé enn almennt talið að þeir sem eru þybbnari ættu að fela holdið undir klæðnaði. „Ég hataði líkama minn áður. Ég vil sýna að það er mögulegt að elska það sem aðrir telja að sé rangt,“ segir Linda Mari.

„Ég hef grátið yfir því hvernig ég er vaxin. Ég hef tekið myndir af maganum og langað að æla. Mér hefur verið strítt vegna vaxtarlagsins frá því ég var sex ára. Ég man ennþá hvernig mér leið þegar mér var strítt í skóla. Ég man ennþá hvernig mér leið þegar vinir pabba míns spurðu mig við matarborðið hvort ég vildi virkilega borða meira og horfðu síðan með undrunaraugum á mig tólf ára gamla,“ skrifar Linda Marie sem hefur margoft reynt að grenna sig.

„Ég hef reynt ótal megrunarkúra. Ég verð þó aldrei grönn og ég vil það heldur ekki lengur. Ég sit ekki í sófanum allan daginn og ég fæ mér ekki köku í morgunmat. Ég stunda líkamsrækt, borða hollt og líður bara helvíti vel,“ skrifaði Linda Marie.

Af þeim þúsund tölvupóstum sem henni barst þá var um 95 prósent þeirra frá stúlkum sem þökkuðu henni fyrir hugrekkið. Linda hvetur aðra til að sýna líkama sinn og vonast til að fólk fari að láta af þeirri hugsun að það sé aðeins ein leið til að vera heilbrigður.

Sjá bloggsíðu Lindu Marie.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.