Steinunn Camilla hannar skartgripi :„Litla barnið mitt“

Skartgripaverkstæði í eldhúsinu

„Þetta er svona litla barnið mitt sem ég hef gert til hliðar við tónlistina. Þar sem þetta varpar mynd á áhugamál mín og persónulegar skoðanir,“ segir Steinunn Camilla söngkona úr The Charlies en hún opnaði í dag vefverslun þar sem hún selur skartgripi sem hún gerir í eldhúsinu heima hjá sér í Los Angeles. Hún er búsett þar ásamt þeim Ölmu guðmundsdóttur og Klöru Elíasdóttur.

„Þetta er lítið fyrirtæki og allt sem því tengist geri ég sjálf heima úr eldhúsinu okkar. Frá því gera hvern skartgrip frá grunni að því að taka allar myndirna og setja upp heimasíðuna frá a-ö. Yfir í að pæla í hugmyndfræðinni á bak við hvern grip og tengja það við hluti sem hafa heillað mig í gegnum tíðina,“ en Steinunn segir gripina strax hafa vakið athygli í Hollywood.

Steinunn á ekki langt að sækja hæfileikana. „Ég hef alltaf verið að hanna og búa til skartgripi enda kem ég af þremur kynslóðum gullsmíðameistara, en foreldar mínir eiga verslunina Gull og Silfur á laugaveginum og því hefur skartgripagerð og hönnun ávallt verið stór partur af lífi mínu.“

Fyrirtæki Steinunnar heitir CarmaCamilla. Sem fyrr sagði opnaði hún vefverslun í dag en slóðin á hana er carmacamilla.com. Steinunn er með fjórar mismunandi skartgripalínur í gangi en þær heitia Liberty, Phoenix, Spikefull og Isis. Eyrnalokkarnir úr Liberty-línunni hafa verið þeir vinsælustu hingað til en hver þeirra heitir eftir fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Innblástur línunnar er sóttur í Frelsisstyttuna en gaddarnir sem eru einkennandi í henni svipa til þeirra sem er að finna á krúnu styttunnar. „Eyrnlokkarnir er gerðir úr göddum og eru vinsælasta línan hjá mér. Dans-og tónlistarsenan hérna í L.A er virkilega hrifin af þessu. Síðan hef ég fengið athygli frá tískuhúsum og boðið að selja þá í búðum hérna í L.A,“ en Steinunn segir hina ýmsu stílista einnig hafa sýnt þeim áhuga og fengið lánaða í myndatökur. „Sjálf hef ég notað lokkana þegar við höfum verið að koma fram, í myndböndunum okkar og í myndatökum.“

Steinunn segir áhugann fyrir eyrnalokkunum og tíðar fyrirspurninir vegna þeirra vera ástæðuna að hún ákvað loksins að fara alla leið með hönnunina. „Ég hef í raun ekki getað farið neinstaðar án þess að fá fyrirspurnir um lokkana og í kjölfarið á því hafa stelpurnar og vinir mínir hér hvatt mig til að setja upp verslun. Ég ákvað bara að kýla á það.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.