Karlar í brasilískt vax

Sumar snyrtistofur vilja ekki vinna á þessu svæði líkama karlmanna

Í dag þykir það ekki neitt tiltökumál að konur fari í brasilískt vax, en það eru ekki mörg ár síðan það þótti ekki svo sjálfsagt og konur hvísluðust á um þetta. Nú eru karlmenn sumir hverjir farnir að skella sér í brasilískt vax en mörgu karlmenninu þykir það vera alveg út í hött og algerlega tilgangslaust.

Þægilegt og hreinlegt

DV ákvað að kynna sér málið og talaði við nokkra karlmenn sem hafa farið í brasilískt vax og eins starfsfólk á snyrtistofum sem bjóða upp á þetta. Einn viðmælenda sagði að hann hefði gert þetta til að prófa því hann fari alltaf í vax á bringunni og finnist það mjög þægilegt eftir á. Hann sagði líka að það væri alltaf vont að fara í vax en samt misvont eftir því hver það væri sem sæi um framkvæmdina. Versti staðurinn væri í náranum.

Annar viðmælandi er búinn að fara í brasilískt vax í fimm ár og finnst það æðislegt. Hann segir þetta hafa verið vont fyrst en svo hafi það vanist og sé alveg þess virði í dag.

Fáar stofur bjóða upp á brasilískt vax fyrir karla

Við vinnslu greinarinnar kom í ljós að fæstar snyrtistofur bjóða upp á þetta og fengust sums staðar þau svör að „það þætti bara ekki smekklegt“ og aðrar svöruðu því til að þetta væri eitthvað sem þau hefðu „ekki sérhæft sig í“.

Einn af snyrtifræðingunum sem hefur framkvæmt brasilíska vaxmeðferð á karlmönnum, en vill ekki koma fram undir nafni, segir að þeir karlmenn sem komi til sín séu margir hverjir að koma vegna þrýstings, bæði frá maka og umhverfinu. Ungu strákarnir séu farnir að líta á líkamshár sem eitthvað sem eigi ekkert að vera og fyrst konur láti fjarlægja þau þá geri þeir það líka. Hún er með nokkra fastakúnna og svo spyrst þetta út en eins og er sé hún ekki til í að auglýsa þetta. Karlmenn eru líka að hennar sögn töluvert viðkvæmari en konur því þeir kvarti mun meira í brasilísku vaxi en konurnar geri, í það minnsta heyrist fjórfalt meira í þeim.

Skiptir ekki máli hvort kynið kemur í vax

Rósa á snyrtistofunni Neglur og list, einni af fáum stofum sem býður upp á þessa þjónustu, segir það vera að færast í aukana að karlmenn komi í brasilískt vax. „Ég get ekki svarað fyrir alla en ég veit að margar stofur vilja ekki vinna á karlmönnum á þessu svæði en fyrir mér eru þetta bara hár sem þarf að fjarlægja, skiptir ekki máli hvar á líkamanum það er eða hvort kynið er um að ræða,“ segir Rósa. Hún segir það líka algengt að það sé komið með stráka til þeirra sem verið sé að steggja og þá sé viðkomandi ekki alltaf til í að láta verða af þessu en í flestum tilfellum séu þeir sem komi að sjálfsögðu að koma því þeir vilji það sjálfir. Rósa segir líka ástæður fyrir vaxinu vera misjafnar: „Stundum eru karlmenn að koma af því þeim finnst þægilegt að vera lausir við hárin og finnst þetta bara einfaldlega hreinlegra og betra. Svo eru líka margir hlauparar sem koma til okkar því oft koma sár undan hárunum á þeim sem hlaupa mikið.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.