Á þessum tíma árs fara ofnæmissjúklingarnir oft að þjást af frjókornaofnæmi sem getur valdið miklum óþægindum. Frjókornaofnæmi er eitt algengasta ofnæmið sem kemur fram í nefi og augum. Margir þjást af ítrekuðu kvefi í byrjun sumars áður en þeir átta sig á því að hér sé um frjókornaofnæmi að ræða. Eitt helsta einkennið er kláði í augum, augun verða rauðsprengd og það rennur úr þeim. Önnur óþægileg einkenni eru kláði í nefi og síendurteknir hnerrar. Ýmsar tegundir lyfja gegn ofnæminu má nálgast í apótekum án lyfseðils en gott er samt að ráðfæra sig alltaf við lækni áður en farið er að taka ofnæmislyf.
Í dag var frjókornastuðull fyrir gras 38 og á velflestum láglendisstöðum á landinu er frjótími grasa kominn vel í gang. Náttúrufræðistofnun greinir frá því að í Reykjavík og á Akureyri eru frjótölur háar á þurrviðrisdögum og þessa dagana fjölgar grasfrjóum sem mælast í Urriðaholti.
Ástæða ofnæmisins
Á vef Náttúrufræðistofnunar kemur fram að fyrstu vallarfoxgrösin með útsprungin blóm í axpunti eru farin að sjást í Reykjavík. Extrakt úr frjókornum vallarfoxgrass er gjarnan notað í vökvann sem svokölluð pikkpróf (ofnæmispróf) eru gerð úr.
Þar segir:
„ Ef fólk er með grasofnæmi bregst það í langflestum tilvikum við frjókornum vallarfoxgrass, Phleum pratense L. er latneska heitið.
Nú eru síðustu forvöð að slá vallarfoxgrasið þannig að það nái ekki að dreifa frjókornum. Ef grasið er slegið í tæka tíð þá þroskast öxin ekki frekar og frjóhnapparnir ná ekki að koma fram í dagsljósið og tæma sig af frjókornum í næstu vindhviðu.
Súrufrjó (frá túnsúru, hundasúru og njóla) koma í loftið í júní - júlí. Þau geta valdið ofnæmi. Súrufrjóum í lofti fjölgar enn. Rétt er að benda á að víða eru vegkantar rauðlitaðir af súrublómum. Ef ekið er um slíka vegi er betra að hafa bílglugga lokaða, að öðrum kosti sogast súrufrjóin inn í bílinn rétt eins og rykið af malarvegum forðum daga og valda þeim óþægindum sem í bílnum sitja og haldnir eru gróðurofnæmi.“
Hægt er að fylgjast með frjótölum á vefsíðu Náttúrufræðistofnunar og þeir sem eru slæmir af ofnæmi ættu að Byrja daginn á að skoða hve mikið mælist af frjókornum en Veðurstofa Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands standa í sameiningu að mælingu frjókorna í andrúmslofti. Með því sérðu hvað þú getur átt í vændum þann daginn og skipulagt hann eftir því.
Tengdar fréttir

Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013