Ferrari skóbúnaðarins

Flottir skór fyrir stórar og smáar dömur

Hönnuðurinn Michael Toschi segist hafa fengið innblástur frá níu ára gamalli dóttur sinni þegar hann hannaði skóna í Luv-línunni.

Hann hannaði þessa skó fyrir stúlkur og konur á öllum aldri í alls kyns litum. Michael segist hafa viljað hafa þægindi í fyrirrúmi og margra ára rannsóknir séu að baki Luv-skónum. Þeir eru mótaðir eftir fótunum og einstaklega léttir.

Margir hafa skrifað um þessa hönnun Michaels og hafa Luv-skórnir meira að segja verið kallaðir „Ferrari skóbúnaðarins“.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.