Súkkulaðibitakökur eru alltaf vinsælar, nánast hvar sem þær eru í boði, í barnaafmælum, fullorðinsafmælum, jólaboðum eða saumaklúbbnum. Þessar eru æðislega góðar.
Súkkulaðibitakökur
125 gr smjör/smjörlíki
125 gr púðursykur, helst ljós
50 gr sykur
1 egg
1 tsk. vanilludropar
175 gr hveiti
1/2 tsk. salt
1 tsk. natrón
200 gr súkkulaðidropar
50 gr saxaðar valhnetur (má sleppa)
Ofninn er hitaður í 190°C. Smjöri, púðursykri og sykri hrært vel saman, eggin hrærð saman við ásamt vanilludropum. Síðan hveiti, salt og natrón, en ekki allt í einu og síðast súkkulaði og hnetum. Sett með teskeið á smurða plötu og bakað í um það bil átta mínútur (þær eiga að vera mjúkar og seigar) ef óskað er eftir brúnum kökum má bæta við 1–2 matskeiðum af kakói, það er mjög vinsælt hjá krökkunum. Þetta eru ekta amerískar súkkulaðibitakökur og alveg syndsamlega góðar.

Hemmi Gunn fallinn frá