Holdarfar þitt í alþjóðlegum samanburði

Reiknivél sem finnur út BMI-stuðul

Mikrónesar eru þyngsta þjóð í heimi ef marka má tölur frá Sameinuðu þjóðunum og Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni um hæð og þyngd í löndum heimsins.

Á vefsíðu BBC býðst mönnum að slá inn hæð, aldur, kyn og þyngd og fá þannig út svokallaðan líkamsþyngdarstuðul, eða BMI, sem ofangreindar stofnanir nýtast óspart við.

Stuðullinn finnur út fituhlutfall óbeint með því að reikna út massa einstaklinga. Reiknivélin situr þig svo á alþjóðlega skalann og segir þér hvar þú stendur í heiminum, þyngdarlega séð.

Reyndar eru fjölmargir annmarkar á stuðlinum. Ýmsir fræðimenn hafa gagnrýnt notkun hans og sagt hann svo ónákvæmt tæki til þess að reikna út fituprósentu að honum ætti að kasta fyrir róða. Hann tekur til dæmis ekki rúmmál einstaklinga inn í reikningin, sem ætti að vera nokkuð lýsandi fyrir holdarfar þeirra.

En stærsti annmarki stuðulsins er sá að hann hundsar vöðvaprósentu. Þar sem að vöðvar vega meira en fita eru íþróttamenn og þeir sem eru vel á sig komnir líkamlega iðulega flokkaðir sem feitari en þeir eru í raun.

Hér má auðveldlega reikna út BMI stuðul sinn.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.