Sjálfstraust barna

5 árangursríkar leiðir til að auka sjálfstraust barna

Að hafa gott sjálfstraust er ómetanlegt og foreldrar hafa mikið um það að segja að börn þeirra fari út í lífið með gott og heilbrigt sjálfstraust. Hér eru nokkur dæmi sem Ladyzona birti sem leið fyrir foreldra til að auka sjálfstraust barna sinna.

Bros

Brostu til barnsins þíns þegar það horfir á þig. Bros hlýjar barninu þínu um hjartarætur, það finnur fyrir umhyggju og ást. Ef þú setur í brýnnar, ert kuldaleg/ur eða er reiðileg/ur á svip þegar barnið horfir í augu þér þá verður það óöruggt og hefur áhyggjur af því að það hafi gert eitthvað til að reita þig til reiði.

Mundu að ávallt þegar ósamræmi er á milli svipbrigða þinna og þeirra orða sem þú notar þá mun barnið alltaf taka mark á því hvað andlitið segir frekar en þeim orðum sem þú notar.

Eyddu tíma með barninu þínu

Barni líður eins og það sé öruggt þegar það er með foreldrum sínum, svo eyddu meiri tíma með barninu þínu. Vertu vinur þess og hvettu það til að taka þátt og vera með í alls kyns tómstundum og íþróttum. Hlustaðu á barnið þitt, þá finnur það að þér finnist það vera þess virði að hlusta á.

Auktu getu barnsins

Leyfðu barninu að taka þátt í heimilisverkum, smáum og einföldum verkum sem henta aldri þess. Gefðu því færi á að nota sjálfstæði sitt til verksins og forðastu að koma með neikvæðar athugasemdir um verkið. Þegar barnið hefur leyst verkefnið þakkaðu því fyrir og hrósaðu því sérstaklega fyrir eitthvað sem það gerði sérstaklega vel. Barnið finnur þar fyrir sínu eigin ágæti og finnst það geta gert gagn og eykst þar af leiðandi sjálfstraust þess.

Leiðréttu ranghugmyndir

Börn hafa frjótt ímyndunarafl. Þess vegna getur barn ranglega tengt neikvæða útkomu við ákveðnar orsakir sem beinast að skorti þeirra á getu og hæfileikum.

Eitt gott dæmi um svona er að í ævintýrum eru stjúpmæður yfirleitt vondar en eins og allir vita er það sem betur fer sjaldnast raunin, en þetta er eitthvað sem mörg börn gefa sér út frá því sem þau heyra.

Forðist samanburð

Miðaðu barnið aldrei við annað barn. Spurningar eins og „Af hverju gerir þú ekki eins og bróðir þinn?“ eru bara til þess fallnar að skapa með barninu skammartilfinningu og afbrýðisemi sem eru mjög slæmt fyrir sjálfstraustið.

Ekki heldur segja við barnið þitt að það sé betra en öll hin börnin. Frekar ætti barnið að fá hrós fyrir það sem það gerir sjálft og er jákvætt og hjálpaðu því að vinna með veikleika sína. Börn læra af gjörðum og orðum foreldranna, svo það er mikilvægt að þau læri ekki af þeim að tala illa um fólk, að vera ofurviðkvæm eða annað slíkt.

Hugur barna er eins og leir, við getum mótað hann á jákvæðan hátt með jákvæðum athöfnum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.