1. Sátt við sjálfa(n) þig
Það er enginn fullkominn og því skaltu ekki reyna að vera það. Gerðu frekar eins vel og þú telur þig geta og vertu sátt(ur) við það.
2. Lærðu af mistökum þínum
Viðurkenndu að þú hafir gert mistök því allir gera mistök á lífsleiðinni. Þau eru hluti af þroska þínum.
3. Æðruleysi
Hugsaðu um hverju þú getur breytt og hverju ekki. Ef þú vilt breyta einhverju, byrjaðu þá strax. En ef það er eitthvað sem þú getur ekki breytt (t.d. hæð þín), sættu þig þá við það og lærðu að meta það.
4. Jákvæð hugsun
Hugsaðu jákvætt um sjálfa(n) þig. Ef þú finnur fyrir neikvæðum hugsunum um sjálfa(n) þig reyndu þá meðvitað að stoppa það til dæmis með því að segja eitthvað jákvætt upphátt. Einnig er gott ráð að skrifa niður þrjú jákvæð atriði um þig á hverjum degi.
5. Ánægja með lífið
Prófaðu nýja hluti, þú gætir fundið dulda hæfileika.
6. Láttu ljós þitt skína
Hafðu trú á þér og skoðunum þínum.
7. Skemmtu þér
Njóttu þess að vera með vinum þínum og fjölskyldu. Ekki bíða eftir að hlutirnir gerist, hafðu frumkvæði að samskiptum.
8. Láttu vita ef þér líður illa
Leitaðu til þeirra sem þér þykir vænt um, það er oft gott að tala við einhvern.
9. Hjálpaðu
Vertu hjálpsamur við vini og fjölskyldu. Vinsemd og hjálpsemi í garð annarra styrkir sjálfsmynd þína.
10. Finndu styrkleika þína og þekktu veikleika þína
Allir hafa einhverja styrkleika. Þú þarft að finna þína og mundu að hæfileikarnir styrkjast og þróast með þér.
Hugsaðu um styrkleika þína og láttu drauma þína rætast.
11. Settu þér markmið
Og finndu leiðina að þeim. Reyndu að halda þeim markmiðum sem þú setur þér.

Hemmi Gunn fallinn frá