Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
07:00 › 30. júní 2012
Ofvernd og undanlátssemi eykur líkur á þunglyndi barna ef marka má niðurstöður nýrrar rannsóknar. Vísindamenn segja kröfu nútímans um endalausa hamingju hafa öfug áhrif.
Unga kynslóðin sé vön að fá það sem hún vill og því geti hindranir haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. „Foreldrar sem vilja verja börn sín gegn hörðum raunveruleikanum skilja þau eftir berskjölduð,“ segir prófessor Lucy Bailey sem stóð að rannsókninni.
„Börn sem svipta sig óvænt lífi koma oft frá góðum fjölskyldum þar sem nóg er af stuðningi og ást. Þegar þau loksins mæta mótstöðu, hvort sem það er í ástarsambandi, námi eða í samskiptum við fjölskylduna, kunna þau ekki að takast á við hana.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013