Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
08:10 › 3. júní 2012
„Mér finnst það ekkert meira áberandi þegar ég vakna en á öðrum tímum. Það er meira bara þegar ég geng fram hjá speglinum og rek augun í hvað hárið á mér er ljótt. Þá spyr ég sjálfan mig hvað hafi gerst? Ég sem var svo sætur í gær,“ segir Oddvar sem segist ekki ennþá hafa fundið útskýringuna á því af hverju „ljótan“ poppi af og til upp.
„Kannski er ég bara tilraunamaður í eðli mínu en ég tek myndir af mér þegar ég er með „ljótuna“ jafnt sem „sætuna“. Ég vil ná fjölbreytninni og tek því myndir af mér þegar ég er lasinn, úttútnaður í flugvél, ógeðslega sólbrunninn, nýkominn með krullur og þegar ég er á leið í jarðarför.
Lestu lengra viðtal við Oddvar um ljótuna í Helgarblaði DV.


Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi