14 leiðir að Miðjarðarhafinu

Galdraðu fram réttu stemninguna þótt þú sért heima í garði

Það er fátt dýrðlegra en að heimsækja fjölbreytilega veitingastaði við strendur Miðjarðarhafsins. Ef þú ert ekki á leiðinni í sólarlandaferð í ár geturðu samt notið sumarsins og komist í gírinn með því að njóta þess holla og fjölbreytta mataræðis sem sem kennt er við Miðjarðarhafið. Bjóddu í garðpartý í góða veðrinu og skapaðu alvöru sumarstemningu.

Barri með tómötum, ólívum og salsasósu

Einfaldur en gómsætur fiskréttur með ólívum, tómötum, basiliku, dilli og rauðri piparrót.

Grillað lamb með ristuðum hvítlauk

Rósmarín, blóðberg og örlítið kúmen eykur á náttúrulegt bragð lambsins. Berðu kjötið fram með ristuðum hvítlauk.

Blaðdeig með geitaosti og krömdum ólívum

Þessi réttur á rætur sínar að rekja til hins gríska „spanikopita“ sem byggist á spínati og feta osti á örþunnum deigbotni. Geitaostur, tómatar og ólívur gera réttinn enn betri. Bakaðu hann og berðu strax fram sem aðalrétt.

Grískt salat með tómötum, ólívum og fetaosti

Venjulega eru engin salatblöð í grísku salati heldur bara gúrkur, tómatar, ólívur, laukur og fetaostur. Bættu við ólívuolíu og örlitlu þurrkuðu óreganói.

Bauna og pancetta pizza

Búðu til litlar pizzur með pítubrauði og skreyttu með „pancetta“ eða beikonbitum, osti, rósmarín og mörðum hvítum baunum.

Grillaður humar með brauðmylsnu

Heimafólk á Sardiníu lumar á ráði til að koma í veg fyrir að humarinn þorni við grillun – nefnilega brauðmylsnu. Skerðu humarinn til helminga og dreifðu ristaðri brauðmylsnu, hvítlauk, ansjósum, steinselju í hvorn helminginn og grillaðu síðan á miklum hita.

Grillað eggaldin og tómatar

Yndisfagur eftirréttur sem er svo einfaldur í framleiðslu. Nældu þér í gott pestó og skerðu niður ferska tómata og mozzarella. Passaðu að eiga gæða balsamik edik til að bragðbæta með.

Ítalskt „antipasto“

Antipasto er hefðbundinn ítalskur forréttur sem samanstendur af grilluðum ólívum, stórum bitum af grænmeti, osti og kjöti.

Grilluð þistilhjörtu

Til að vera alveg viss um að þistilhjörtun séu lungamjúk skaltu sjóða þau fyrst og grilla svo. Bjóddu upp á ídýfu úr ólívuolíu.

Tyrkneskur pítuborgari

Búðu til gómsæta tyrkneska pítu með kalkúnakjöti, lambi og pítubrauði.

Sítrónufylltur vartari

Þessi grillaði fiskiréttur gæti ekki verið einfaldari. Vartarinn er fylltur með sítrónum og svo grillaður.

Þorskur með tómötum, ólívum og kapers

Allur þéttur hvítur fiskur bragðast dásamlega með tómötum, ólívum og kapers.

Kjúklingur með eggaldin á grænu

Grillaðu kjúklinginn á háum hita ofan á eggaldininu. Berðu fram með klettasalati og sítrónu salatsósu.

Kúrbítur með rækjum og fetaosti

Skerðu kúrbítinn í tvennt og fylltu á hann með grænmeti og rækjum. Grillaðu þar til hann er mjúkur og bættu feta ostinum við.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.