Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér, en samkvæmt tveimur rannsóknarnemum hjá Cambridge háskóla, gæti það verið regnbogalitaðar hægðir.
Sjálfsagt hafa fáir hugað að slíku, en Alexandra Daisy Ginsberg og James King hjá Cambrigde háskólanum í Englandi hafa lagst í viðamikla rannsókn á því hvernig hægt sé að greina alvarlega sjúkdóma, veiru- eða bakteríusýkingar í hægðum fólks með því að láta það borða sérstaka jógúrt.
Munu þau hafa hannað svokallaða DNA-röðun sem kallast „BioBricks“ og komið því í snertingu við E.coli bakteríuna. Útkoman var kölluð „E.Crhomi“. Bakterian framleiðir með þessu litarefni.
Þrátt fyrir að hafa aðeins verið notað á E.coli segist rannsóknarteymið vera bjartsýnt að hægt sé að nota slíka aðferð við að greina ristilkrabbamein, orma, salmonellu eða jafnvel magasár.
Yrði þá gerð sérstök jógúrt sem myndi kalla fram lit í hægðum, eftir því hvað það er sem amar að viðkomandi.
Hér er heimasíða verkefnisins, en í myndbandinu hér fyrir neðan má læra um E.Chromi.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013