Inngróin hár eftir vax

Góð ráð til að losna við þennan hvimleiða vanda

Það verður sífellt algengara að konur fari í vax fremur en að raka sig eða nota háreyðingarkrem. Hárin eru fjarlægð með rótum og það getur valdið því að þær fá inngróin hár.

Sumar konur fá meira af inngrónum hárum en aðrar en fyrir þær sem fá þau er þetta hvimleitt vandamál. Það eru hins vegar til nokkrar aðferðir til að draga úr þessu til muna.

Gefðu húðinni nógan raka

Drekktu nóg af vatni. Ef húðin og hárið fá nægan raka þá eru mikli minni líkur á að fá inngróin hár og þú finnur miklu minna til þegar verið er að fjarlægja hárin. Talað er um að 6–8 glös af vatni á dag séu alveg kjörið magn. Líka er gott að nota gott rakagefandi krem á húðina sjálfa.

Skrúbbaðu húðina reglulega

Það er ofboðslega mikilvægt að skrúbba húðina vel og reglulega. Með því ertu að losa húðina við dauðu húðfrumurnar sem geta átt það til að stífla hársekkina, þaðan sem hárin koma.

Kældu húðina vel

Eftir vaxmeðferðir er húðin mjög viðkvæm og rauð og þá er mjög mikilvægt að kæla húðina vel. Til þess er gott að nota til dæmis þvottapoka og ískalt vatn. Þetta dregur mjög mikið úr roða og sviða.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.