Sumar konur taka getnaðarvarnarpilluna nánast öll sín fullorðinsár án þess að finna nokkuð fyrir aukaverkununum sem henni geta fylgt. En það eru margar konur sem geta ekki tekið inn hormóna eins og er að finna í pillunni. Ástæðan fyrir því er oft sú að þær fá allar aukaverkanirnar sem varað er við á fylgiseðlinum og fyrir þær konur er þetta ekkert gamanmál.
Það er erfitt fyrir konu að fá „með pillunni“ ógleði, höfuðverk, minni kynhvöt, bólur, skapsveiflur sem hún ræður ekki við, að þyngjast, eymsli í brjóstum, höfuðverk, þreyta og grátköst, allt í þeim tilgangi að geta stundað kynlíf án þess að óttast það að verða ófrísk.
Við skulum bara vera heiðarleg: kynlíf er ekki það fyrsta sem kona getur hugsað sér þegar hún er búin að þyngjast, komin með bólur, með höfuðverk, aum í brjóstunum, pirruð og þreytt, það er algjörlega af og frá.
Í þessum tilfellum er bara best að hætta á pillunni og það sem fyrst, bæði fyrir konuna sjálfa og ekki síst maka og nána vini.
En það eru ekki margar getnaðarvarnir í boði fyrir þær konur sem eru eins og þessar sem lýst er hér. Það er í rauninni mjög fátt í boði annað en bara gömlu góðu verjurnar já eða koparlykkjan sem hefur sína galla sem ekki verður farið nánar í hér.
Svo eru til tæki sem konur nota til að mæla hita sinn um leið og þær vakna á morgnana, áður en þær fara fram úr rúminu. Þannig fylgjast þær með frjósemistímabili sínu, en frjósemisdagar eru 6 dagar í mánuði. Það eru 5 dagar fyrir egglos og svo á egglosdaginn sjálfan.
Þessi tæki virðast, samkvæmt athugun DV, ekki vera til á Íslandi, í það minnsta fundust engin slík til sölu við vinnslu fréttarinnar. En þau eru mörg sem hægt er að finna á netinu á alls konar verði.
Tækið sem DV skoðaði heitir Lady-Comp. Þetta er lítil handhæg tölva sem konur geyma í náttborðsskúffunni og er líka vekjaraklukka. Um leið og þær vakna á hverjum morgni eiga þær að mæla líkamshita sinn. Tækið fer svo að þekkja konuna betur og betur með tímanum og verður því áreiðanlegra með tímanum. Á skjáinn á tækinu koma upp þrír litir sem segja þér hver staðan er þann daginn.
-Grænn: Ófrjó
-Rauður: Frjó
-Gulur: Ekki viss/Er að læra á hringinn
Gulur er litur sem með tímanum kemur æ sjaldnar upp eftir að tölvan kynnist þér betur. Hann kemur bara upp ef einhver óvissa er í gangi og tækið er samkvæmt heimasíðu Lady-Comp 99,3 prósent áreiðanlegt.
Fyrir konur sem hreinlega geta ekki bætt hormónum í líkama sinn, hvort sem það er í gegnum pilluna, hormónalykkjuna, sprautuna, stafinn eða hringinn þá er þetta alveg tilvalin getnaðarvörn. Konan fer að þekkja tíðahring sinn mjög vel, það eru engar aukaverkanir og það eru nokkuð margir dagar þar sem hægt er að njóta kynlífs án nokkurra varna. Svo er þetta tæki alveg kjörið líka ef pör eru að reyna að eignast barn.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013