„Viðtökurnar hafa verið frábærar,“ segir Sigurður Guðmundsson á Akureyri en hann rekur kaffihúsið Café Björk í Lystigarðinum á Akureyri ásamt Njáli Trausta Friðbertssyni.
„Sérstaða okkar er fyrst og fremst staðsetningin og svo er þetta eitt af örfáum kaffihúsum sem er sérhannað frá upphafi til enda sem kaffihús. Þegar húsið var byggt var notast við formið á gömlu byggingunni,“ útskýrir Sigurður og bætir við að Lystigarðurinn eigi 100 ára afmæli á þessu ári.
„Í stofnsamþykkt garðsins frá 1909 var alltaf gert ráð fyrir húsi. Garðurinn sjálfur var opnaður árið 1912 og í tilefni 100 ára afmælisins var tekin sú djarfa ákvörðun af hálfu Akureyrarbæjar að byggja hér hús. Húsið er umlukið trjám og gróðri og eftir eitt ár mun eflaust líta út fyrir að það hafi verið hérna í áratugi.“
Sigurður segir flest það sem er í boði búið til í húsinu. „Við stílum inn á norðlenskt hráefni og erum með sérbrennt kaffi frá Kaffibrennslu Akureyrar. Innanstokksmunir, stólar, sófar og annað, eru svo allt húsgögn sem eru framleitt hér á Akureyri í kringum miðja síðustu öld. Allir stólarnir hérna inni voru gefnir af Akureyringum. Því var ekki einn einasti stóll keyptur í húsið.“
Að sögn Sigurðar verður nóg um að vera á kaffihúsinu og í Lystigarðinum í sumar. „Við erum að setja saman dagskrá. Hér verður nokkuð þétt dagskrá út af afmæli Akureyrarbæjar sem og afmæli Lystigarðsins,“ segir hann og bætir aðspurður við að þótt kaffihúsum á Akureyri fari fjölgandi hafi hann engar áhyggjur. „Það er alltaf nóg af fólki og ég er viss um að úrvalið eykur aðsóknina á alla staði.“
Frönsk súkkulaðikaka Café Bjarkar:
4 egg
2 dl sykur
200 gr smjör
200 gr suðusúkkulaði
1 dl hveiti
Aðferð:
Þeytið egg og sykur vel. Blandið hveiti saman við. Bræðið smjör og súkkulaði við vægan hita og bætið varlega út í deigið. Bakið í vel smurðu formi við 170°C í 30 mínútur. Kakan á að vera blaut í miðjunni.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi