Sæt hálfmánapítsa frá Völla Snæ

Þóra og Völundur Snær alsæl í sveitasælunni

Þóra Sigurðardóttir fjölmiðlakona og Völundur Snær meistarakokkur opnuðu veitingastaðinn Pallinn á Húsavík 1. júní síðastliðinn og eru í skýjunum yfir hve vel hefur gengið. „Við vissum ekki alveg á hverju við áttum von en það hefur verið alveg brjálað að gera og ferðamannatímabilið er ekki enn komið á fullt,“ segir Þóra í samtali við DV.

Veitingastaður þeirra hjóna er staðsettur ofan á Björgunarsveitarhúsinu svokallaða og með besta útsýni í bænum. „Við erum með 40 fermetra tjald þar sem kósíheitin ráða ríkjum og þetta er allt mjög heimilislegt og afslappað hjá okkur. Við létum sérsmíða fyrir okkur stærðarinnar grill sem grillar heila lambaskrokka á 90 mínútum og svo erum við alltaf með spriklandi ferskt hráefni úr flóanum.“

Þóra segir að sú ákvörðun þeirra að flytja norður á Húsavík sé ein sú besta sem þau hafa tekið í langan tíma og þetta hafi gengið vonum framar „Við þurfum klárlega að bæta við starfsfólki þannig að ég nota tækifærið og auglýsi formlega eftir frábæru fólki í salinn og inn í eldhús,“ segir Þóra glaðlega.

Sæt hálfmánapítsa með ávöxtum og súkkulaði frá Völla Snæ

Uppskriftin dugar í tvær hálfmánapítsur. Notaðu ávextina sem taldir eru upp hér eða þá ávexti sem þér þykja bestir og eru ferskastir hverju sinni.

1 bolli volgt vatn

2 msk. eða 1 pakki þurrger, 7 gr

2 msk. sykur

1 msk. ólífuolía eða grænmetisolía

2 ½ bolli hveiti

¼ tsk. salt

Helltu volgu vatni, geri og sykri í stóra skál. Hrærðu vel í blöndunni og láttu standa í 5 mínútur. Blandaðu olíunni út í og síðan hveitinu og saltinu þar til úr verður mjúkt deig. Helltu því út á hveitistráð bretti og hnoðaðu í nokkrar mínútur, þar til áferðin er mjúk og næstum teygjanleg. Leggðu hreint viskustykki yfir deigið og láttu það hvíla í að minnsta kosti 10 mínútur. Eftir hefunina slærðu deigið niður og skiptir því í tvennt. Flettu hvorn helming út í stóran hring, 30–35 sentimetra í ummál. Útbúðu fyllinguna.

Fylling

2 bollar dökkt súkkulaði, gróft saxað eða skafið

1 bolli bláber

1 bolli brómber

1 bolli hindber

1 bolli jarðarber

1 box rjómaostur, 225 grömm, skorinn í bita og látinn ná stofuhita

1 bolli litlir sykurpúðar

Saxaðu súkkulaðið og settu til hliðar í skál. Stráðu helmingnum af súkkulaðinu á sinn deighlutann hvorn sem þú flattir út. Geymdu afganginn. Settu svo bláber, brómber, hindber og jarðarber yfir. Penslaðu jaðar hvors helmings um sig með svolitlu vatni. Brjóttu deigið í tvennt og þrýstu niður með fingrunum til að loka pítsunni. Stráðu svolitlu hveiti yfir. Færðu hana varlega yfir á grillið á diski. Gættu að því að hitinn sé ekki of mikill, sykurinn má ekki brenna. Snúðu diskinum á hvolf og settu pítsurnar á grillið. Grillaðu við mjög lágan hita í nokkrar mínútur og penslaðu með ólífuolíu. Snúðu pítsunni eftir nokkrar mínútur. Penslaðu hina hliðina með ólífuolíu. Snúðu pítsunni oft þar til botninn tekur á sig fallegan gullinn lit. Taktu af grillinu, skerðu þær í sneiðar og berðu fram með vanilluís, frosinni jógúrt, vanillubúðingi eða þeyttum rjóma.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.