Konur hlaupa á áttatíu stöðum

Taktu með þér brjóstarhaldara og gefðu

Kvennahlaupið er í dag, laugardaginn 16. júní, en hlaupið er fjölmennasti íþróttaviðburður sem fram fer hér á landi ár hvert segir í tilkynningu frá ÍSÍ. Hlaupið verður frá 80 stöðum hér á landi en 16 stöðum erlendis.

Fjölmennustu hlaupin eru í Garðabæ, Mosfellsbæ, á Akureyri og í Reykjanesbæ.

Í Garðabæ hefst hlaupið kl. 14:00 og dagskrá og upphitun hefst kl. 13:30 en í Mosfellsbæ, á Akureyri og í Reykjanesbæ hefst hlaupið kl. 11 en upphitun kl. 10:45.

Slagorð hlaupsins, Hreyfing til fyrirmyndar, er að þessu sinni tileinkað 100 ára afmæli Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands.

Konur á öllum aldri eru hvattar til þess að hreyfa sig reglulega og vera hluti af íþróttahreyfingunni sem iðkendur, leiðtogar, sjálfboðaliðar eða foreldrar.

Kvennahlaupið er í samstarfi við Rauða krossinn og eru konur hvattar til þess að koma með brjóstahöld í hlaupið og gefa í fatasöfnun Rauða krossins.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.