Kjúklingur með spínati og mozzarella

Kjúklingaréttur sem allir í fjölskyldunni elska

Á vefsíðunni skinnytaste.com er að finna fjöldan allan af girnilegum og hollum uppskriftum. Þar á meðal er þessi kjúklingaréttur sem hentar vel fyrir stórar veislur eða bara þegar fjölskyldan vill hafa það kósí.

Bakaðar kjúklingabringur með spínati, ricotta, tómötum og mozzarella:

Fjórar kjúklingabringur (hver bringa þverskorin svo útkoman verði átta þunnar sneiðar)

1/2 bolli brauðmylsna

1/4 bolli sneiddur parmesanostur

Lúka af frosnu spínati (allur safi kreistur í burtu)

6 teskeiðar af ricotta-osti

2 teskeiðar af mozzarella-osti

1 dós af söxuðum niðursoðnum tómötum

Salt og pipar

Þvoðu og þurrkaðu bringurnar, kryddaðu með salti og pipar.

Blandaðu brauðmylsnunni og tveimum teskeiðum af parmesan saman í skál og settu 1/4 bolla af eggjahvítu í aðra skál.

Settu afganginn af ostinum saman við þurrt spínatið auk tveggja teskeiða af eggjahvítunni.

Legðu kjúklinginn á bretti og smyrðu spínati og osti yfir hverja sneið. Rúllaðu sneiðunum saman. Dýfðu í eggin og svo í brauðmylsna og settu í eldfastmót.

Bakað í 25 mínútur. Taktu réttinn út úr ofninum og settu tómatana yfir og svo mozzarella í sneiðum. Settu aftur inn í ca þrjár mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.