Fötin seld fyrir heimsreisu

Diljá og Kamilla opna litla verslun á laugardaginn

„Þetta er heima hjá mér í litlu risíbúðinni minni sem ég er að fara að flytja út úr,“ segir Diljá Ámundadóttir, varaborgarfulltrúi Besta flokksins, en hún ætlar ásamt Kamillu Ingibergsdóttur að opna litla verslun heima hjá sér á Njálsgötu 16 næstkomandi laugardag. Diljá tók nýlega mjög afdrifríka ákvörðun um að selja íbúðina sína, segja upp vinnunni og halda í heimsreisu. Verslunarreksturinn á Njálsgötunni er einn þáttur í því að hreinsa út úr íbúðinni og safna fé upp í ferðina, en Diljá heldur af landi brott út í óvissuna í byrjun ágúst. „Maður verður að taka þetta alla leið og opna litla búð heima hjá sér. Það verður farið í geymsluna, þannig þetta verða einhverjir húsmunir og dúllerí og svo föt, og Kamilla á sko ótrúlega mikið af flottum fötum. Kamilla þarf líka að safna sér pening því hún ætlar að koma og heimsækja mig í nóvember, þar sem ég verð, mjög líklega í Taílandi.“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem heimili Diljár er notað sem verslunarhúsnæði en Kamilla opnaði litla verslun þar árið 2007. „Það gekk rosalega vel og við ætlum að endurtaka leikinn núna. Svo ætlum við bara að hafa góða tónlist í gangi og bjóða upp á gott te og lakkrís. Það var þannig síðast, þá vorum við með fullt af lakkrís og tei og okkur finnst fyndið að hafa það aftur.“

Diljá gerir ráð fyrir að kveðjustemning muni svífa yfir vötnum á Njálsgötunni á laugardaginn enda eigi margir góðar minningar úr íbúðinni sem hún er búin að eiga í 10 ár. Hún viðurkennir að það hafi verið pínu erfitt að selja íbúðina. „Þetta er ljúfsárt, en það er ótrúlega gaman að eiga svona góðar minningar þaðan.“ Hún mun afhenda hana nýjum eigendum 1. júlí næskomandi.

„Ég fann einmitt minnisbók um daginn frá árinu 2002 þegar ég keypti íbúðina og var að flytja inn í hana. Í bókinni voru fjölmargir „to do“-listar sem fylgja þegar maður er að kaupa íbúð, fara með þetta skjal til sýslumanns og svona, og nú er ég með troðfulla tölvu af „to do“-listum um hvernig á selja og flytja út úr íbúð,“ segir hún hlæjandi.

Viðburðurinn á laugardaginn nefnist Búðaland dill&mill og er verslunin opin á frá 12.00 til 18.00.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.