Enginn okkar hefur áhuga á að lenda í fangelsi en fyrir suma er dvöl á bak við lás og slá blákaldur veruleiki. Eftirfarandi listi er byggður með bandarísk fangelsi í huga en eflaust má yfirfæra margt á íslensk tukthús.
1. Ekki leita verndar
Þeir sem bjóða upp á vernd í fangelsum gera það ekki af góðmennsku. Oft eru þessir einstaklingar að leita að einhverjum til að níðast á.
2. Ekki ræða glæpinn
Þessi regla á sérstaklega við þá sem hafa brotið af sér kynferðislega. Þeir fangar eru oftast með skotmark á bakinu.
3. Forðastu fjárhættuspil
Að flækjast inn í fjárhættuspil í fangelsi getur verið stórhættulegt. Þú gætir lent í því að eiga ekki fyrir skuldum þínum eða, ef þú vinnur, gert ranga aðila reiða. Hins vegar er ágætt að læra að spila áður en þú ferð inn til að stytta þér stundirnar.
4. Ekki ganga í lið með vörðunum
Að kjafta um aðra fanga við verðina getur verið hættulegt. Hins vegar skaltu umgangast verðina af virðingu.
5. Ekki skulda neinum
Þegar þú kemur í fangelsið munu aðrir fangar eflaust bjóðast til að lána þér hluti þar til þú kemur þér fyrir – til að mynda tóbak. Ekki taka slíkum boðum, oftar en ekki er verið að gabba þig til að taka á þig skuld sem þú átt erfitt með að losna við. Ef þú reykir skaltu reyna að nota tækifærið og hætta að reykja.
6. Ekki stara á aðra fanga
Horfðu beint fram fyrir þig þegar þú gengur. Augnabliks gláp á annan fanga getur hreinlega verið hættulegt.
7. Ekki nota eiturlyf
Ef þú ert fíkill á bak við lás og slá aukast líkurnar á skuldum verulega. Ekki láta freistast.
8. Æfðu líkamann
Að þjálfa líkamann styttir þér ekki aðeins stundir heldur verða stæltir einstaklingar síður skotmark. Ekki sýna veikleikamerki. Réttu úr baki og horfðu fram fyrir þig þegar þú gengur – ekki horfa niður á tærnar.
9. Haltu þér saman
Ekki blanda þér í heitar umræður um eldfim efni líkt og trúmál og pólitík. Slíkar rökræður geta auðveldlega breyst í rifrildi og slagsmál. Að sama skapi skaltu ekki reyna hnýsast í einkamál annarra fanga.
10. Sýndu virðingu
Virðingin er oft það eina sem fangar eiga. Ef þú tekur hana frá þeim er voðinn vís. Ekki leika þér að því að eignast óvini.

Hemmi Gunn fallinn frá