Fjarstýringin er tölva

Vafraðu á meðan þú spilar

Tölvuleikjarisinn Nintendo kynnti í vikunni á E3-leikjaráðstefnunni næstu skref sín með Wii-tölvuna. Á ráðstefnunni í fyrra kynnti Nintendo til leiks nýja tölvu sem kallast Wii U og smátt og smátt eru fleiri smáatriði að koma í ljós um þessa mögnuðu vél sem mun, ólíkt forvera sínum, senda frá sér mynd í háskerpu.

Fjarstýring eða hvað?

Nintendo hefur lagt hvað mesta áherslu á að kynna fjarstýringuna sem mun fylgja Wii U. Hún ólík flestu sem sést hefur í leikjatölvuiðnaðinum. Fjarstýringin er í raun tölva með fullkomnum snertiskjá og margs konar skynjurum. Í gegnum hana geta spilendur gert ýmislegt. Svo sem spila leiki áfram þó slökkt sé á tölvunni, notað á fjölbreyttan hátt í leikjaspilun og átt í samskiptum við aðra notendur um allan heim. Bæði myndrænt og með skilaboðum. Ef þú nennir ekki að slá inn skilaboðin á snertiskjáinn getur þú líka handskrifað þau.

Þar sem fjarstýringin hefur sinn eigin skjá hefur hann sitt sjálfstæða hlutverk í leikjaspilun. Auk þess er hægt að nota hefðbundna Wii-stýripinnann áfram með Wii U-fjarstýringunni. Þannig getur spilandi til dæmis lagt Wii U-fjarstýringuna á gólfið, horft á golfbolta á skjánum, brautina í sjónvarpinu og slegið höggið með hefðbundnu Wii-fjarstýringunni.

Ekki nóg með það heldur getur hún tengst internetinu og er með vafra. Hún er því í raun spjaldtölva líka. Þú getur verið á netinu í fjarstýringunni á meðan þú spilar leikinn í sjónvarpinu.

Samkeppnishæf?

Einn helsti galli Wii-tölvunnar var hvað hún var takmörkuð þegar kom að grafík. Hún hefur slegið í gegn hjá yngri notendum og fjölskyldum en tölvuleikjaunnendur sem eru lengra komnir og vilja meiri hasar hafa ekki sótt í Wii. Þessu vill Nintendo breyta með Wii U.

Sem fyrr sagði er grafík vélarinnar í háskerpu líkt og Xbox 360 og PS3 og telja Nintendo hana samkeppnishæfa að því leyti. Til að höfða enn frekar til leikjanörda mun verða fáanleg svokölluð Wii U Pro-fjarstýring sem svipar meira til þeirra stýripinna sem fylgja Xbox 360 og PS3.

Kraftleysi Wii varð til þess að margir leikjarisar sniðgengu vélina þar sem „kraftur“ hennar var svo takmarkaður. Ekki eru allir sannfærðir um að Wii U verði nægilega öflug þrátt fyrir mikla bragarbót frá Wii. Tæknispekingar segja vélina ekki einu sinni standast Xbox 360 og PS3 snúning eins og þær eru núna, hvað þá þegar Microsoft og Sony senda frá sér nýjar vélar.

Wii-heimurinn

Líkt og með Wii leggur Nintendo ekki aðeins áherslu á leikjaspilun heldur samskiptakerfi sem sameinar notendur um allan heim. Notendur Wii sem og Wii U geta búið til sína persónu í gegnum tölvuna og kallast hún Mii. Í Wii U hefur verið búinn til heimur sem kallast Miiverse. Sá heimur er efni í sér blaðagrein en þar eru möguleikarnir gríðarlegir. Þú getur tengst öðrum notendum beint heim í stofu og átt við þá samskipti í gegnum háskerpumynd og hljóð. Ekki ólíkt Skype fyrir þá sem þekkja það samskiptaforrit. Í Miiverse getur þú haft samband við og séð myndrænt hverjir eru að spila sama leik og þú, hvaða leikir eru vinsælastir og margt fleira.

Verðið gæti fælt frá

Það er ljóst að stökkið frá Wii yfir í Wii U er stórt en verður það nógu stórt til að ná þeim markhópi sem Nintendo stefnir að? Hvað sem því líður er ljóst að Nintendo er að stórbæta Wii-upplifunina og rúmlega það en verðið mun hafa sitt að segja. Ein af ástæðunum fyrir því að Nintendo Wii hefur selst í mun meira mæli en Xbox 360 og PS3 er verðið. Með nýju fjarstýringunni mun verðið hins vegar hækka til muna og er talið að það verði í kringum 600 dollara eða um 80.000 krónur. Þetta eru þó óstaðfestar tölur. Nintendo Wii kostar í dag um 150 dollara en PS3 um 250.

Eins og allar vélar hefur Wii U kosti og galla en við fyrstu sýn virðast möguleikarnir endalausir.

asgeir@dv.is


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.