Stjörnurnar þurfa ekki lengur að óttast að nektarmyndir leki á netið

Sjálfeyðandi myndskilaboð með nýju snjallforriti

Með tilkomu stafrænna myndavéla og myndavélasíma verða til sífleiri myndir sem sá sem tekur þær ætlast ekki til að þær verði geymdar mjög lengi. Þetta á til að mynda við um nektarmyndir sem frægir leikarar og söngvarar í Hollywood hafa sent til sinna heittelskuðu en endað hafa á vafasömum vefsíðum. Evan Spiegel er komin með lausn við þessu.

Myndirnar eyðast eftir skoðun

Snapchat er nýtt og ókeypis snjallforrit fyrir iPhone sem Spiegel hefur þróað ásamt vini sínum. Forritið eyðir sjálfkrafa myndum sem eru sendar í gegnum þjónustu fyrirtækisins eftir ákveðinn tíma og kemur þannig í veg fyrir að hægt sé að vista vafasamar myndir sem ekki er ætlað að komast í almenna dreifingu. Myndir sem sendar eru í gegnum forritið eyðast í mesta lagi tíu sekúndum eftir að hún er opnuð. Forritið er einnig þannig að það lætur sendana mynda vita ef reynt er að taka skjáskotsmynd af myndinni áður en hún eyðist.

Snapchat er þó ekki algjörlega ný hugmynd. Aðrar þjónustur eins og Burnnote og Tigertext bjóða upp á sjálfeyðandi textaskilaboð í gegnum bæði tölvur og snjallsíma. Snjallforritið hefur þó náð talsverðir útbreiðslu nú þegar enda sérstaklega ætlað fyrir myndir.

Bætir við hindrunum

Spiegel er nemandi í Stanford háskóla í Bandaríkjunum og var hann of upptekinn við skólaverkefni þegar blaðamaður New York Times hafði samband við hann um forritið. Hann gat því ekki sjálfur svarað því hversu örugg þjónustan væri og hvort Hollywood-stjörnur gætu nú sent nektarmyndir sín á milli án þess að eiga hættu á að myndirnar birtust á slúður- eða klámsíðum.

Þess í stað hafði New York Times samband við Michael Fertik, forstjóra Reputation.com, sem er fyrirtæki sem sérhæfir sig í að láta fólk koma vel út á netinu. Hann segir snjallforritið vissulega bæti við nokkrum hindrunum á vegi þeirra sem vilja leka myndum en líklega sé ómögulegt að koma alfarið í veg fyrir það.

Ekki alveg öruggt

Eytt af því sem forritið getur ekki komið í veg fyrir er að fólk taki mynd af skilaboðunum eins og þau birtast á skjánum í þær fáu sekúndur sem skilaboðin eru opin. Það er því ekki hægt að fullyrða að þjónustan komi alfarið í veg fyrir að myndskilaboð komist ekki í rangar hendur. Svo virðist vera sem Spiegel sjálfur átti sig á þessu en sérstakir fyrirvarar eru settir á þjónustuna.

Í skilmálunum segir að Snapchat geri tilraun til að eyða myndum út af vefþjóni sínum eins fljótt og auðið en geti ekki tryggt að skilaboðunum sé eytt í öllum tilfellum. „Þar af leiðandi eru skilaboð send á ábyrgð notenda,“ segir meðal annars í skilmálunum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.