Níu ástæður til að fara út að hlaupa

Mun auðveldara að hlaupa en ganga rösklega

Ný rannsókn sérfræðinga við ríkisháskólann í Norður-Karólínu sýnir fram á að það eru mun minni átök fyrir líkamann að skokka en að ganga rösklega. Skokkið veldur minna álagi á kálfana og þú þreytist síður.

„Fólki finnst almennt mun þægilega að byrja að hlaupa þegar hraðinn er kominn upp í rúmlega sjö kílómetra á klukkustund,“ útskýrir Gregory Sawicki, sem stýrði rannsókninni. „Vöðvarnir geta ekki haldið í við gönguhraðann ef hann eykst meira en það.“

Er þetta aðeins ein af fjölmörgum ástæðum fyrir því að þú ættir að reima á þig hlaupaskóna og vera óhrædd/ur við að auka hraðann úr göngu yfir í hlaup. Það er einfaldlega þægilegra.

Hér eru fleiri góðar ástæður til að gera hlaup að hluta af lífsstílnum.

Áttu í vandræðum með svefn? Ef þú hreyfir þig reglulega er líklegra að þú losnir við eirðarleysi og sofnir án vandkvæða. Varast skal þó að stunda líkamsrækt seint á kvöldin því það getur haft þveröfug áhrif.

Hlaup eykur blóðflæði og súrefnisflutning til heilans, sem sem stuðlar að örari vexti nýrra heilafruma. Rannsóknir hafa sýnt fram á að áhrifanna gæti mest í drekanum (e. hippocampus), því svæði heilans sem hefur með námsgetu og minni að gera.

Hlaup hjálpa til við að styrkja beinin og geta dregið úr líkum á beinþynningu.

Hlaup gera húðina sléttari og mýkri. Framleiðsla kollagens í húðfrumunum eykst sem stuðlar að því að því að húðin á auðveldara með að nýta næringarefni og losa sig við úrgang. Um leið og sú hringrás verður örari og blóðflæðið til húðarinnar eykst, framkallar það ljóma í andlitinu og vöðvarnir verða stinnari.

Hlaup gera þig hamingjusamari. Margir grípa til þess ráðs að fá sér súkkulaði þegar þeim líður illa, en það er mun gáfulegra að fara út að hlaupa. Hlaupin örva heiladingulinn og hann losar um endorfín, sem er það náttúrulega efni líkamans sem lætur okkur líða vel.

Hlaup losa um streitu og auðvelda þér að takast á við stressið sem fylgir amstri dagsins. Farðu út að hlaupa áður en þú ferð í vinnuna og finndu hvernig þú átt miklu auðveldara með að takast á við daginn.

Hlaup hraða efnaskiptaferli líkamans og líkaminn á auðveldara með að brenna fitu. Meðalmanneskja brennir um 300 hitaeiningum á því að hlaupa í hálftíma. Hlaup er því sú líkamsrækt sem er best til þess fallin að að brenna orku og fitu.

Hlaup hjálpa þér ekki aðeins við að missa kíló heldur einnig við að breyta fitu í vöðva. Líkaminn verður því allur grennri og stinnari. Á þetta ekki bara við um kálfa læri og rass, heldur hafa hlaup einnig mikil áhrif á efri hluta líkamans.

Rannsókn frá árinu 2010, sem birtist í British Journal of Sports Medicine, sýnir fram á að regluleg hreyfing getur dregið úr líkunum á því að fá kvefpestir um allt að helming. Ónæmiskerfi þeirra sem hreyfa sig reglulega á einnig mun auðveldara með að vinna á pestunum og þær verða ekki eins svæsnar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.