„Við höldum sama striki með geggjað úrval af vintage fatnaði í bland við einstakar vintage merkjaflíkur og okkar frábæra úrval af skarti,“ segir Anika Laufey Baldursdóttir verslunarstjóri Nostalgíu.
Verslunin opnar í dag á nýjum stað á Laugavegi 39. Afgreiðsludömurnar eru ánægðar með nýju staðsetninguna og hlakka til að vera sólarmegin á Laugaveginum í sumar. „Við erum rosalega glaðar með flutningana, Hrafnhildur Hólmgeirs hannaði allt lúkkið á búðinni sem er mjög ferskt og kúl," segir Anika.
Flutningunum verður að sjálfsögðu fagnað með heljarinnar sumarpartýi fyrir gesti og gangandi milli klukkan sjö og níu í kvöld. Anika hvetur fólk til að klíkja við og þiggja lèttar veitingar undir stuðtónum Dj Yamaho sem ætlar að koma fólki í stuðið fyrir sólríka partýhelgina.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013