Flugfélagið Wow Air býður til miðnættis í kvöld tilboðsverð á flugi aðra leiðina í júní til Parísar og Lyon.
Júní er þægilegur mánuður í borginni Lyon. Hitinn ekki enn orðinn óþægilegur fölbleikum Íslendingum
Lítið lát virðist á tilboðum flugfélaganna sem hafa stanslítið boðist síðan í síðustu viku íslenskum neytendum til hagsbóta. Og ekki búið enn. Nú er í boði að fljúga aðra leiðina til Parísar eða Lyon í júnímánuði fyrir 9.800 krónur með sköttum og gjöldum.
Það er ekki nema rúmum 33 þúsund krónum ódýrara en allra ódýrasta ferðin með Icelandair til Parísar í júní svo dæmi sé tekið miðað við verðtöflu 30. maí klukkan 9:00.
Ritstjórn leyfir sér að mæla sérstaklega með 21. júní í París, Lyon og öllum stærri borgum Frakklands þegar fram fer hin eitilskemmtilega Fête de la Musique fer fram en þá taka hundruð tónlistarmanna sig til og fylla króka og kima og götur af ljúfri músik. Nánar hér.
Lesa á Fararheill.is

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi