Jæja, þá er ekki ein einasta afsökun fyrir að spendera ekki einni utanlandsferð á fjölskylduna eða betri helminginn. Aftur bjóða bæði Iceland Express og Wow Air upp á verðsprengju í flugferðum.
Bæði Wow Air og Iceland Express berjast áfram um að bjóða flugfarþegum hagstæðustu fargjöldin til og frá landinu
Er um sams konar tilboð að ræða og fyrir helgina þegar Iceland Express auglýsti nokkra áfangastaði sína á 9.900 krónur og Wow Air svaraði því með tilboði til tveggja borga þúsund krónum ódýrar.
Nú kostar til miðnættis á morgun 9.900 krónur aðra leiðina með Iceland Express til Kaupmannahafnar, Edinborgar, London, Vilníus, Bologna og Basel. Gildar miðar keyptir nú í allt sumar til ágústloka.
Sömuleiðis er hægt að fá flugfar aðra leiðina til Kaupmannahafnar eða London aðra leiðina á 8.900 krónur með Wow Air. Þeir miðar gilda þó aðeins um flug í júní.
Heimasíða Wow Air hér. Heimasíða Iceland Express hér.
Lesa á Fararheill.is

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum