Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
12:00 › 29. maí 2012
Þeir sem hrjóta eru í meiri hættu á að deyja af völdum krabbameins. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn vísindamanna við læknaháskólann í Wisconsin.
Þar kemur fram að þeir sem hrjóta lítillega eru aðeins 0,1 sinni líklegri til að deyja af völdum krabbameins en þeir sem hrjóta ekki. Þeir sem hrjóta mjög mikið séu hins vegar 4,8 sinnum líklegri til að deyja úr krabba.
Niðurstöðurnar voru byggðar á gögnum 1522 manns á yfir 22 ára tímabili. Fyrri rannsóknir á músum hafa bent til svipaðrar niðurstöðu en þar kom í ljós að súrefnisskortur vegna hrota getur orðið til þess að örva vöxt æxla.
Niðurstöðurnar birtust í tímartinu American Journal of Respiratory and Critical Care Medicine.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013