Þegar árin færast yfir fer líkaminn óhjákvæmilega að taka á sig ýmsar breytingar. Það er þó auðveldara en margur heldur að halda sér unglegum, með litlum sem engum tilkostnaði og án allra inngripa.
Jákvætt viðhorf getur gert kraftaverk gegn hrukkum. Stöðugar áhyggjur og neikvæðar hugsanir hafa áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu og geta framkallað hrukkur. Tileinkaðu þér jákvætt viðhorf til lífsins og þú munt fljótlega sjá hvernig líkami þinn bregst við breytingunum.
Ferskur sítrusilmur getur yngt þig um mörg ár. Ekki hræðast að setja á þig unglegan ilm og gefðu þannig frá þér unglegri strauma.
Þegar konur ná ákveðnum aldri eiga hryggjarliðirnir það til að slakna og erfiðara getur orðið að halda bakinu uppréttu. Til að halda þér hnarreistri og bakinu beinu er gott að gera daglega æfingar með tennisbolta. Stattu með bakið upp við vegg og settu boltann neðst við hrygginn. Beygðu svo hnén en haltu bakinu beinu og færðu boltann upp að hálsinum án þess að snerta hann með höndunum. Endurtaktu 20 sinnum.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013