Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
07:00 › 28. maí 2012
Svokallaðir pítsusteinar hafa verið vinsælir til notkunar á grillið og í ofninn. Þá er pítsudeigið sett á steininn og verður pítsan stökkari og bragðbetri en ella.
Pítsusteinar þessi kosta sitt en það má vel finna þessa steina úti í náttúrunni og nota. Finnir þú flatan stein í ákjósanlegri þykkt og stærð, um það bil fimm sentimetrar á þykkt, þá er kominn pítsusteinn á grillið.
Þvoðu steininn vel, helltu til að mynda á hann sjóðandi vatni og skrúbbaðu hann hreinan. Berðu svo á hann góða ólífuolíu áður en þú skellir honum á grillið eða í ofninn.
Hafðu grillið eða ofninn lokaðan meðan steinninn hitnar. Settu svo deigið á og bættu fyllingunni ofan á pítsuna.

Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013