Samkvæmt nýlegri rannsókn er sá sem þjáist af lotuofáti (e. binge eating) líklegri en aðrir til að verða eiturlyfjum að bráð. Þetta kom fram í rannsókn sem var framkvæmd við Penn State-læknaháskólann.
Vísindamenn vonast til að niðurstöðurnar muni auka skilning á eiturlyfjanotkun, fíkn og bakslagi og verði til þess að í framtíðinni verði auðveldara að meðhöndla einstaklinga með fíknisjúkdóma.
„Dópneysla er meiriháttar vandamál í Bandaríkjunum,“ segir prófessor Patricia Sue Grigson við Department of Neural and Behavioral Sciences en Grigson meðal þeirra sem stóðu að rannsókninni.
„Að sama skapi er lotuofát orðið að vandamáli. Hvort tveggja snýst um stjórnleysi í neyslu. Miðað við hvað margt er líkt með eiturlyfjanotkun og ofáti þá kemur ekki á óvart að margir séu háðir hvoru tveggja. Um það bil 20 prósent rotta og manna sem komast í snertingu við kókaín þróa með sér fíkn í efnið undir eðlilegum kringumstæðum. Í okkar rannsókn jukust líkurnar um 50 prósent ef rotturnar höfðu þjáðst af lotuofáti.“
Niðurstöðurnar voru birtar í tímaritinu Behavioral Neuroscience.
Tíu atriði í staðinn fyrir ofát:
1. Farðu út
Áttu hund? Farðu með hann út að ganga. Reyndu að njóta alls þess sem náttúran og umhverfið hefur upp á að bjóða. Virtu blómin fyrir þér, skoðaðu húsin í götunni eða horfðu á háu trén.
2. Listræn útrás
Saumaðu, málaðu, teiknaðu og skapaðu eigin meistaraverk. Þú getur fengið útrás fyrir tilfinningar þínar í listinni. Af hverju kíkirðu ekki í hannyrðaverslun og prófar eitthvað sem þú hefur aldrei prófað áður?
3. Spilaðu erfiðleikana burt
Sestu við píanóið, glamraðu á gítar, blástu í flautu. Hvaða hljóðfæri sem þú kemst í. Búðu til nýtt lag eða rifjaðu upp gamla nótnatakta.
4. Skapaðu ró
Skapaðu réttu stemminguna fyrir notalegt heitt bað með kertum, róandi olíum og fallegri tónlist. Lokaðu augunum og njóttu kyrrðarinnar.
5. Syngdu með
Settu Mozart á fóninn eða láttu Beethoven færa þig inn í annan heim. Ef þú ert ekki fyrir klassíkina skaltu spila þína uppáhaldstónlist. Syngdu hátt og finndu hvernig skapið batnar.
6. Skrifaðu þig til bata
Skrifaðu niður í dagbókina þína hvernig þér líður. Skrifaðu hvað það var sem gerðist sem varð til þess að þig langaði til að „detta í það“. Þér líður betur þegar þú hefur létt á hjarta þínu. Í framtíðinni geturðu svo lesið færslurnar með stolti vitandi að þarna gafstu ekki upp fyrir fíkninni.
7. Sannfærðu þig
Skrifaðu niður setningu um að þú ætlir ekki að falla. Settu miða þess efnis um alla íbúð. Ekki gleyma að setja eintak á ísskápinn. Reyndu alltaf að telja þig af því að „falla“.
8. Keyrðu í burtu
Farðu í bíltúr en mundu að skilja peninga og kreditkort eftir heima. Aktu á svæði þar sem lítið er um freistingar líkt og sjoppur. Þannig áttu allavega erfiðara með að missa þig.
9. Talaðu
Taktu upp símann og hringdu í einhvern sem þú treystir og getur talað við um tilfinningar þínar. Einhvern sem gefur sér tíma til að ræða við þig þangað til þér er farið að líða betur.
10. Fáðu innblástur
Lestu greinar eða bækur um fólk sem þú getur lært af og litið upp til.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013