Ef aðeins væru héðan ferðir til Grikklands

Engir slá hendinni mót góðum tilboðum og sérstaklega ekki þegar sumarfrí eru annars vegar. Það er því töluverð synd að ekki sé boðið upp á pakkaferðir héðan til Grikklands en þar hefur kostnaður við gistingu og uppihald sjaldan verið lægri.

Góður staður til heimsókna án þess að hækka yfirdráttinn er Grikkland þessi dægrin

Samkvæmt vefmiðlinum Tripadvisor hafði meðalverð á hótelum almennt í landinu lækkað um 25 prósent frá hefðbundu verði strax í febrúar og sá niðurgangur hefur haldið áfram samkvæmt grískum miðlum. Segja fróðir hægt að finna ágæta gistingu nú á allt að 40 prósenta afslætti frá því sem eðlilegt hefur talist í landinu síðustu árin.

Sömuleiðis er allt uppihald billegra en verið hefur. Mun færri ferðamenn sækja Grikkland heim nú en í meðalári sem þýðir að veitingastaðaeigendur verða að gjöra svo vel og bjóða betri tilboð en ella til að heilla. Á þetta meira að segja við á allra vinsælustu stöðum eins og á mörgum grísku eyjanna og sérstaklega í Aþenu og öðrum stærri borgum.

Ekki er þó komist beint til Grikklands frá Íslandi og veldur það ákveðnu veseni hafi fólk áhuga. Frá London, París, Osló eða Kaupmannahöfn bjóða þó lágfargjaldaflugfélög ferðir til Grikklands á gjafverði á íslenskan mælikvarða.

Þó þykir ennfremur ljóst að neyðist Grikkir til að hætta í evrusamstarfinu og taka aftur upp sína gömlu drökmu mun verðlag almennt lækka töluvert í viðbót en þá líka munu ferðalangar flykkjast þangað í stríðum straumum.



Lesa á Fararheill.is


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.