Elsti jógakennari heims er 91 árs

Hún hefur kennt í 61 ár en hin 91 árs gamla Tao Porchon-Lynch hefur nú verið viðurkennd af Heimsmetabók Guinness sem elsti jógakennari veraldar. Og Tao gamla er ekkert á þeim buxunum að leggja jógamottuna á hilluna.

„Ég mun kenna uns ég hætti að anda og flýg á vit nýrra ævintýra á annarri plánetu,“ segir hin eiturhressa Tao sem kennir hópi nemenda í dansstúdíói skammt utan New York-borgar. Hún segir að læknirinn sem skipti um mjöðm í henni fyrir mörgum árum síðan kalli hana kraftaverkakonuna.

Eftir aðgerðina sendi hún honum mynd af sér í „lotus-stellingunni“ og stakk þar með upp í lækninn og allar dómsdagsspár hans.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.