Íslendingar versla mun meira erlendis

Efist einhver um að hlutirnir séu almennt á uppleið á farsældar frón nægir að líta til þess hve mikið við eyðum erlendis. Samkvæmt vísitölu Valitor hér á landi hefur landinn keypt vörur á kredit eða debit erlendis fyrir 11,6 prósent meira að meðaltali síðustu sex mánuði ársins en sömu mánuði í fyrra.

Ætli Íslendingar hafi ekki reitt fram kort sín hér í Prudential verslunarmiðstöðinni í Boston í einhverjum tilvikum í vetur.

Aðeins tvennt kemur til greina. Annaðhvort er allt á uppleið eða að þessir fáu sem peningana eiga eyða nú töluvert meira en fyrir ári. Af þessu tvennu telur ritstjórn Fararheill meiri líkur á því fyrrnefnda enda stemmir aukin verslun erlendis við aukna sölu ferðaskrifstofa og flugfélaga á þessum sama tíma.

Gera má að því skóna að vegna gjaldeyrishaftanna og þess hámarks peningaseðla sem heimilt er að skipta í erlendan gjaldeyri brúki nú fleiri Íslendingar kreditkort sín erlendis í enn meiri mæli en áður því ekki getur Seðlabankinn sett hámark á verslun með þeim.

Samkvæmt vísitölu Valitor, sem er fyrirtækið að baki Visa kortum landsmanna, jókst verslun erlendis í aprílmánuði nú og í fyrra um 14,6 prósent alls. Apríl er páskamánuðurinn og fleiri á faraldsfæti þá en aðra vetrarmánuði. Svipuð aukning í verslun með Visa kortum erlendis mældist í nóvember, janúar og febrúar. Alla síðustu sex mánuði er kortaveltan erlendis töluvert meiri en sömu mánuði fyrir ári.



Lesa á Fararheill.is


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.