Þrálátur hósti getur verið merki um lungnakrabba vilja breskir sérfræðingar meina. Þar í landi hefur verið boðað til vitundarvakningar um sjúkdóminn en lungnakrabbamein dregur fleiri Breta til dauða en nokkurt annað krabbamein.
Heilbrigðisráðherrann, Paul Burstow, segir mikilvægt að fólk þekki einkenni krabbameins í lungu og geti þannig bjargað lífi sínu. „Skilaboð þessarar herferðar eru einföld; ef þú ert með hósta lengur en í þrjár vikur skaltu fara til læknis,“ segir Burstow en vonast er til að herferðin, Be Clear on Cancer, bjargi um 1300 mannslífum á ári.
Ýmsar stjörnur sem hafa misst ættingja vegna sjúkdómsins hafa lagt sitt á vogarskálarnar til að vekja athygli á sjúkdómnum. Þar á meðal er leikarinn Ricky Gervais, söngkonan Jenny Frost og knattspyrnuþjálfarinn Sir Alex Ferguson sem missti báða foreldra sína úr lungnakrabbameini.
„Pabbi var 66 ára þegar hann lést og mamma var aðeins 64 ára. Pabbi var greindur með lungnakrabbamein viku eftir að hann hætti að vinna og var dáinn innan tólf mánaða. Mamma hafði reykt alla ævi var einnig greind með lungnakrabba og lést nokkrum árum á eftir pabba,“ sagði Ferguson í viðtali.
Lungnakrabbamein hefur áhrif á 33 þúsund manns í Bretlandi á hverju ári en flestir sem greinast eru yfir 55 ára aldri. Þegar krabbinn er greindur snemma eru 80% líkur á að sjúklingurinn verði á lífi fimm árum eftir greiningu en sú tala lækkar niður í 7% þegar veikindin eru greind seint.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi