Eru hórmangarar og vændiskonur að færa sig upp á skaftið með sífelldum auglýsingum á fölskum forsendum sem ferðafélagar? Það gæti verið raunin á tveimur vinsælum vefum sem báðir auglýsa grimmt ferðafélaga til handa öllum sem vilja.
Brot af úrvali stúlkna á Travelgirls sem leita eftir ferðafélaga hingað og þangað um heiminn
Ferðaáhugafólk sem vafrað hefur um netheima undanfarið ár eða svo ætti að hafa séð oftar en einu sinni áberandi vefauglýsingar frá Travelgirls enda er þær að finna mjög víða á ferðasíðum stórblaða sem og hjá minni spámönnum.
Þar óska ungar og yfirleitt fjallmyndarlegar stúlkur eftir ferðafélaga hingað og þangað um heiminn. Og hvaða lausi karlmaður með vasa fulla af peningum og draum um heimsreisu getur staðist ungar stúlkur á aldrinum 20 til 30 sem gjarnan vilja slást í förina?
Til að öllu sé haldið til haga eru líka karlmenn sem auglýsa eftir ferðafélaga á Travelgirls.
Hann er reyndar alls ekki eini vefurinn þar sem grunur leikur á að sé verið að spila með fólk. Vestur í Bandaríkjunum er svipaður vefur sem trekkt hefur vel að undanförnu. Miss Travel heitir sá en þar er “fátækum” en fallegum stúlkum sem dreymir um ferðalög komið í samband við menn með peninga í vasa. Virkar kerfið þannig að þeir ríku eigi þannig að bjóða þeim ungu með sér í hvers lags ferðalög. Kynnir sá vefur sig reyndar sem stefnumótavef.
Báðir vefir eru afskaplega varasamir að sjá og þó ekki sé hægt að fullyrða neitt er vandséð hvað “fátæk” stúlka sem ferðast með ríkum karli þúsundir kílómetra frá heimili sínu eigi að gera ef karlmaðurinn vill eitthvað fyrir sinn snúð.
Lesa á Fararheill.is

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi