Eru langhlaup lífshættuleg?

Samkvæmt rannsókn deyr einn af hverjum 259 þúsund hlaupurum af völdum hjartaáfalls

Langhlaup valda miklu álagi á líkamann en hversu hættuleg eru þau? Í bandarískri rannsókn á 11 milljón hlaupurum sem tóku þátt í heil- eða hálfmaraþoni á árunum 2000 til 2010 fengu 59 hjartaáfall og þar af létust 42. Það gerir eitt dauðsfall á hverja 259 þúsund hlaupara.

Í kjölfar fréttar af andláti hinnar þrítugu Claire Squires, sem hné niður þegar hún kom að endalínunni í London-maraþoninu á dögunum, hefur áhættan sem fylgir erfiðri líkamsrækt verið ofarlega í umræðunni. Squires er ellefta manneskjan sem deyr í London-maraþoninu sem hefur verið hlaupið frá árinu 1981. Hún er þar að auki fyrsta konan.

Samkvæmt Sanjay Sharma, prófessor og yfirlækni maraþonsins, tengdust sjö þessara dauðsfalla hjartasjúkdómum. Hingað til hafa einungis karlmenn yfir fertugu látist. Hjá fimm þeirra reyndust slagæðar of þröngar og tveir voru haldnir ofvaxtarhjartavöðvakvilla (e. hypertrophic cardiomyopathy). Einn til viðbótar lést eftir að hafa drukkið of mikið af vatni og tveir af völdum heilablóðfalls.

„Við bíðum ennþá eftir niðurstöðum úr krufningu á ungu konunni en mér finnst líklegt að andlát hennar tengist hjartasjúkdómi,“ segir Sharma í viðtali við fréttamiðilinn BBC en hann varð vitni að því þegar konan hneig niður.

Hann segir alvarleg meiðsl langhlaupara sjaldgæf og að oftast sé um minni háttar slys að ræða. „Erfiðasta vandamálið við maraþon er ofþornun. Á heitum og rökum degi getur hlaupari misst allt að fjórum lítrum af vökva í gegnum svita og útöndun. Til að minnka líkur á slysum er nauðsynlegt að æfa vel fyrir hlaupið og muna að hita alltaf vel upp og teygja á vöðvum.“

Ertu í formi fyrir maraþon?

* Ef þú ert haldin/n einhverjum læknisfræðilegum kvillum skaltu tala við heimilislækni áður en þú byrjar að æfa hlaup.

* Einstaklingar með hjartasjúkdóma og sykursýki ættu einnig að ráðskast við lækni.

* Auktu rólega og smám saman við vegalengdir svo þú keyrir þig ekki út.

* Taktu hvíldardag á milli erfiðra æfinga svo líkaminn geti jafnað sig.

* Fylgdu eftir hlaupaplani sem hjálpar þér að byggja upp þol. Ef þú verður veik/ur eða meiðist skaltu hvíla þig. Ekki byrja aftur fyrr en þú hefur jafnað þig að fullu. Leitaðu læknis ef þarf.

* Þumalfingursreglan er að mánuði fyrir hlaupið áttu að geta hlaupið 24 kílómetra án erfiðleika eða þannig að þér líði þannig við endalínuna að þú gætir hlaupið lengra.

* Ekki hlaupa ef þér líður einhverra hluta vegna ekki vel á keppnisdaginn.

Í formi

Claire Squires lést þegar hún hné niður rétt við endalínuna þegar hún tók þátt í London-maraþoninu á dögunum. Squires, sem var þrítug hárgreiðslukona, hljóp til að safna áheitum í minningarsjóð um bróður hennar sem lést af ofneyslu eiturlyfja. Hún var ellefta manneskjan til að látast í hlaupinu frá árinu 1981 og jafnframt sú yngsta. Claire, sem hafði klifið fjallið Kilimanjaro, var í góðu líkamlegu formi og hafði undirbúið sig vel fyrir hlaupið.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.