Kona er nefnd Samantha Brick og olli allnokkru fjaðrafoki í athugasemdakerfi einhverra breskra miðla og varð einnig viðfang spjallþáttar á sjónvarpsstöðinni ITV.
Samantha Brick er bresk en býr í Frakklandi og vann sér til frægðar að senda frá sér pistil á Daily Mail þar sem hún barmaði sér vegna þeirra byrði sem hennar eigin fegurð hafði lagt á hana; konur hreinlega hötuðu hana vegna útlits hennar.
Reyndar, sagði hún í pistlinum, var ekki alslæmt að vera slíkt augnayndi því það var ekki óþekkt með öllu að henni væri meinað að greiða fyrir hitt og þetta. Máli sínu til stuðnings sagði hún frá því er hún sat í mestu makindum í flugvél og vissi ekki fyrr en flugfreyja vatt sér að henni: „Þetta er frá flugstjóranum,“ sagði flugfreyjan og rétti Samönthu eina flösku af kampavíni, „hann vill bjóða þig velkomna um borð og vonar að flugferðin verði þér ánægjuleg.“
Nú skyldi maður ætla að Samantha hefði orðið hissa, en nei. „Þrátt fyrir að þetta hafi verið indælt, þá kom þetta ekki á óvart. Í það minnsta ekki mér,“ segir Samantha í pistlinum.
Lestu ítarlegri umfjöllun um Samönthu Brick í DV í dag.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013