Flest pör þekkja það að peningar vilja oft verða að miklu þrætuefni í sambandinu og er reyndar í mörgum samböndum eitt langlífasta deiluefnið. Sérstaklega á tímum sem þessum þegar kreppir að.
Ekki kenna hvort öðru um
Það er til lítils að kenna hvort öðru um fjármálavandræði heimilisins. Komist að rót vandans og reynið að finna lausn til lengdar. Hvar þið getið sparað eða fyrir hverju þið getið safnað þannig að þið hafið meira á milli handanna.
Ræðið málin
Flestum reynist það illa að ætla algjörlega að hætta alveg að eyða. Í staðinn getur verið gott að setjast niður og komast að raunhæfri niðurstöðu um það hvað skuli eytt í. Setjið ykkur eyðsluviðmið og hvað megi eyða miklu í hvað. Hversu hátt hlutfall launa heimilisins fer í útgjöld og fasta reikninga og hvað megi nota mikið í skemmtanir, föt og annað slíkt. Það þarf að ríkja gagnkvæm virðing um þetta samkomulag annars segir það sig sjálft að það gengur aldrei upp. Standið við samkomulagið og sjáið hvað gerist.
Safnið
Langar ykkur í stærra hús eða bara gott frí? Jafnvel að skella ykkur í meira nám en teljið ykkur ekki hafa efni á því? Stofnið sérstakan reikning sem þið safnið inn á saman. Ef einhver afgangur er um mánaðamótin þá er tilvalið að setja inn á reikninginn. Peningar sem myndu kannski annars fara í óþarfa eyðslu geta nýst í gott frí á sólarströnd. Sumir hafa ekki mikið á milli handanna en þeir sem hafa efni á því sjá að safnast þegar saman kemur. Skipulag er lykilorðið. Hvort sem um ferðareikning eða annað er að ræða þá er alltaf gott að eiga smá aukasjóð sem hægt er að grípa í, komi eitthvað upp á.
Samtaka í kaupum
Það er lykilatriði að það sé ekki tortryggni um fjármál á milli hjóna. Upplýsið hvort annað um stærri útgjaldaliði þannig að ekkert komi á óvart. Það hefur aldrei hjálpað til í neinum hjónaböndum að fela kreditkortareikninginn fyrir makanum. Yfirleitt kemst slíkt upp um síðir og virkar stundum sem svik. Best er að vera vel upplýstur um fjármál hvors annars án þess að vera skipta sér of mikið af. Gullið jafnvægi. Sem sagt ef þú ætlar að kaupa þér kaffibolla þá skiptir það væntanlega maka þinn litlu máli en það er kannski betra að ráðfæra sig við hann um kaup á nýju sjónvarpi.
Peningar eða völd?
Yfirleitt snúast rifrildi hjóna um fjármál alls ekkert um peninga heldur frekar um völd. Stundum þegar eignir hjóna eru mismiklar þá snúast rifrildin um sjálfsálit eða afbrýðisemi. Stundum eru þau um athygli. Þegar þið rífist um fjármál reynið þá að hafa á hreinu um hvað rifrildið snýst. Er það virkilega um peningana sjálfa eða býr eitthvað annað að baki? Ef þér liggur eitthvað á hjarta segðu það þá við maka þinn.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013