ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Föndraðu handa ástinni þinni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:48 › 9. febrúar 2012

Margir Íslendingar fagna ástinni á Valentínusardegi þótt það sé amerískur og breskur siður að mestu leyti. Ástfangnir tjá maka sínum hug sinn með ýmsum hætti.

Margir kaupa blóm og kaupa konfekt og þá er til siðs að skrifa fallegar orðsendingar í kort. Þá er gaman að leyfa hugmyndaauðginni að ráða för. Á síðu Mörthu Stewart er að finna margar góðar hugmyndir að skemmtilegum Valentínusarkortum. Hún mælir með því að skæri og lím séu notuð óspart.

Gamlar ljósmyndir geta reynst prýði og gott að hafa húmorinn með í för. Þeir sem vilja svo gefa eitthvert góðgæti geta bakað kökur sem vísa í rómantík.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?