ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Easyjet sparar sér drjúgan skilding

Frétt af
11:00 › 9. febrúar 2012

Breska lágfargjaldarflugfélagið easyJet hyggst fjölga ferðum sínum til Íslands og fljúga hingað til lands til áramóta í stað sumarloka eins og fyrirhugað var í fyrstu. Með þeim gjörningi losnar flugfélagið breska við öll gjöld á Keflavíkurflugvelli.


Mikil eftirspurn eftir Íslandsferðum en ekki aukið framboð á háannatíma? easyJet sparar sér töluverða fjármuni með því að framlengja áætlunarferðir hingað til lands


Ekki er um fjölgun flugferða í viku hverri að ræða heldur aðeins framlengingu á flugáætlun félagsins hvers talsmenn segja sölu ferða til og frá Íslandi gengið vonum framar. Í fréttatilkynningu er talað um að átta þúsund sæti hafi í heildina selst hingað til.


Vekur athygli ritstjórnar Fararheill að forsvarsmenn easyJet geta aðeins metið sölu ferða frá mars til september eða þann tíma sem upprunaleg áætlun gerði ráð fyrir. Sé eftirspurn eins mikil og gefið er í skyn væri ekki eðlilegra að fjölga ferðum yfir háannatímann?


Miðað við þrjár ferðir í viku í sex mánuði og að vélar flugfélagsins séu fullar er pláss fyrir tæplega 32 þúsund farþega. Séu átta þúsund miðar seldir á enn eftir að fylla 75 prósent af sætum sem í boði verða fram í september. Engum hótelstjóra dettur í hug að stækka hótelbyggingu þó 25 prósent herbergja séu full eða hvað?


Ritstjórn taldi líklegra að aukinn áhugi easyJet væri tilkominn vegna þess að með því að lengja ferðatíma út árið falla niður öll gjöld flugfélagins á Keflavíkurflugvelli og enn ódýrara verður fyrir easyJet að fljúga.


Talsmaður flugfélagsins svaraði ekki fyrirspurnum þessu að lútandi en hjá Isavia er þetta staðfest.



Lesa á Fararheill.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?