Samkvæmt rannsókn þróunarsálfræðinga við háskólann í Michigan og Albright-háskólann í Pennsylvaníu er þráin eftir knúsi og kúri eftir kynmök meiri hjá þeim sem eiga maka sem hafa tilhneigingu til að sofna strax eftir ástarleiki.
Rannsóknin, sem birtist í tímaritinu Social, Evolutionary, and Cultural Psychology í desember, var byggð á svörum 456 þátttakenda við stórri könnun á netinu þar sem spurt var meðal annars: „Hvort sofnar á undan eftir kynmök?“ og „Hvort sofnar fyrr þau kvöld sem þið stundið ekki kynlíf?“ Í ljós kom að þeir einstaklingar sem eiga maka sem sofna strax eftir kynlíf höfðu mesta löngun í nánd, knús og spjall eftir kynmökin.
„Því líklegra sem það er að makinn sofni strax eftir ástarleiki því meiri er löngunin í nánd hjá hinum sem enn vakir,“ segir Daniel Kruger vísindamaður við Michigan-háskóla og höfundur rannsóknarinnar. Annar vísindamaður sem kom að rannsókninni segir að það að sofna strax eftir kynmök geti verið ómeðvituð leið til að losna við erfiðar samræður um sambandið og tilfinningar.
Í rannsókninni var einnig skoðað hvort kynið er líklega til að sofna á undan. Þrátt fyrir algengar staðalímyndir er ekki líklegra að karlmenn sofni á undan konum sínum eftir kynmök. Hins vegar kom í ljós að konur eru líklegri til að sofna á undan þegar kynlíf er ekki stundað. „Kannski vaka menn lengur af þörf til að gæta makans – til að vera viss um að konan fari ekki frá þeim fyrir annan karlmann,“ sagði Susan Huges, sálfræðiprófessor við Albright-háskólann, en Susan var ein af þeim vísindamönnum sem komu að rannsókninni.
Til eru þó nokkrar rannsóknir um hegðun fyrir kynmök en þessi er ein af fáum sem tekur á því sem gerist eftir að kynmökum lýkur. „Herkænska og ráðabrugg varðandi mökun endar ekki við kynmök,“ segir Hughes sem segir jafn forvitnilegt að skoða það sem gerist eftir kynlíf og fyrir.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Hreinskilnari svör með sms
Hættið að rífast um peninga
Finndu þann rétta - á netinu
Kostir hjónabands: Kynlíf og peningar
Karlmenn horfa ekki svo mikið á klám
