ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Ferðaskrifstofa brýtur lög

Frétt af
14:56 › 7. febrúar 2012
  • None

Ein er sú ferðaskrifstofa sem kannski lítið fer fyrir en gengur vel og úrval ferða í boði fjölbreytt og gott. Er þar um að ræða ferðaskrifstofuna Trans Atlantic á Akureyri sem líkast til er ein af þeim stærstu utan höfuðborgarsvæðisins. Sem er frábært mál nema ferðaskrifstofan brýtur lög.


Ferðaskrifstofan Trans Atlantic býður margar forvitnilegar ferðir en lítið er að finna á vef þeirra um kostnað við ferðirnar


Á vef Trans Atlantic má finna margar fróðlegar ferðir og reyndar mun meiri fjölbreytileika en í boði er hjá nokkrum mun stærri ferðaskrifstofum landsins.


En engar finnast verðupplýsingar um flestar þær ferðir sem í boði eru. Það er skýrt brot á lögum enda er óheimilt með öllu af hálfu lögaðila að auglýsa og selja vöru eða þjónustu án þess að geta verðs og þá með öllum sköttum og gjöldum.


Þó eflaust megi finna á þessu skýringar sem efalítið má rekja til flöktandi íslenskrar krónu og gengis hennar gagnvart erlendum gjaldmiðlum er þetta algjörlega óboðlegt gagnvart neytendum að mati ritstjórnar Fararheill. Þá hlýtur þetta ennfremur að kosta starfsmenn Trans Atlantic aukið vesen að svara fyrirspurnum símleiðis eða í pósti.


 



Lesa á Fararheill.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?