ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Falda perlan vel falin hjá Plúsferðum

Frétt af
17:00 › 6. febrúar 2012

Hætt er við að einhverjir viðskiptavinir ferðaskrifstofunnar Plúsferða sem langar til Almeríu á Spáni í sumar rífi hár sitt og skegg ætli þeir sér að panta þar ferð.


Almería er kynntur sem einn sumaráfangastaður ferðaskrifstofunnar Plúsferða en hvergi hægt að bóka á netinu


Svo vill nefninlega til að „falda perlan“ sem ferðaskrifstofan kallar Almeríu finnst alls ekki í bókunarvél Plúsferða.


Það er sannarlega vel falin perla því ekki vantar útlistun á dásemdum Almeríu, eða öllu frekar Roquetas de Mar skammt frá borginni Almeríu, á vef ferðaskrifstofunnar.


Þar stendur meðal annars að þar sé aðgengi allt mjög gott og sérstaklega skemmtilegt sé að fylgjast með„hvernig líf ferðamannsins og hins almenna borgara fléttast saman“ eins og þar stendur.


Í öllu falli eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti af vef Plúsferða er Almería alls ekki í boði í bókunarvélinni. Áhugasamir verða að hringja eða gera sér ferð niður í Lágmúlann til að komast.


Allir áfangastaðir Plúsferða nema Almería finnast í bókunarvél ferðaskrifstofunnar



Lesa á Fararheill.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?