ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Tolli kleif hæsta fjall Afríku

Aðeins sjö af hverjum tíu ná á toppinn
Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is
16:29 › 5. febrúar 2012
Hugleiddi á toppnum
Tolli tók sér stutta stund til þess að hugleiða á toppnum.

Hugleiddi á toppnum Tolli tók sér stutta stund til þess að hugleiða á toppnum.

  • Tolli fór með tíbeskan bænafána upp á topp.

    Tolli fór með tíbeskan bænafána upp á topp.

  • Árni Árnason, Sigurður Ragnar, Pétur Gíslason, Ari Trausti Guðmundsson og Tolli.

    Árni Árnason, Sigurður Ragnar, Pétur Gíslason, Ari Trausti Guðmundsson og Tolli.

Fara í myndagallerý →

Listamaðurinn Tolli er nýkominn heim eftir göngu upp á hæsta fjall Afríku. Drottningu afrísku fjallanna, Kilimanjaro. Ferðina segir hann hafa verið ógleymanlegt ævintýri. Hann fékk tannrótarbólgu á miðju fjalli og tveir úr hópi Íslendinganna fengu fjallaveiki og voru fluttir með skyndi niður fjallið á börum þegar þeir áttu aðeins steinsnar eftir upp á topp.

„Við byrjum gönguna í regnskógi. Eftir því sem hæðin eykst verður landslagið hrjóstrugt og síðasta spölinn má sjá leifar af jökli skríða niður fjallshlíðina, landslagið minnir jafnvel stundum á Ísland því fjallið er líka gamalt eldfjall,“ segir Tolli frá. „Kilimanjaro er sérstakt fjall, það er 5.895 metrar og tilheyrir engum fjallgarði, það er því í raun hæsta frístandandi fjall í heimi.“
Tolli er vanur fjallgöngumaður en segir gönguna ekki tæknilega erfiða. Ekki þurfi mikinn útbúnað, svo sem mannbrodda eða ísaxir, og gangan sé þægileg.
„Það er hækkunin sem reynist erfið. Súrefnið minnkar jafnt og þétt og það eru aðeins sjö af hverjum tíu sem ná á toppinn. Hinir fá fjallaveiki. Leiðangursstjórarnir okkar sem eru innfæddir eru þaulvanir því að fræða göngugarpa um fjallaveiki og það má verjast henni að vissu leyti. Það þarf að stýra hraðanum, fara ekki of geyst upp og þá verður að drekka mikinn vökva. Flestir fá einhver einkenni fjallaveiki þegar farið er upp í svona mikla hæð og það gerði ég. Væg einkenni fjallaveiki eru lystarleysi, svimi, ógleði og hausverkur. Þegar göngumenn fá alvarleg einkenni, þá er eina ráðið að fara með þá í minni hæð undir eins. Til þess eru leiðsögumennirnir með sérstakar börur með einu hjóli undir. Þeim veika er skellt á börurnar og svo er bara hlaupið með þær á ótrúlegum hraða niður.“

Hættulegt að dvelja lengi á toppnum
Af þeim sjö sem voru í hópi Íslendinganna veiktust tveir. „Það var stutt í toppinn þegar þeir veiktust og þurftu að snúa til baka. Annar þeirra átti aðeins nokkra metra eftir. „En við sem göngum á fjöll þurfum að sætta okkur við að komast ekki alltaf upp á topp. Við venjum okkur því á að njóta gönguferðarinnar í mesta æðruleysi. Það getur alltaf eitthvað komið upp á.“
Sjálfur fékk Tolli tannrótarbólgu í miðri gönguferðinni. „Ég hafði af þessu áhyggjur. Því ég var með risastórt kýli í tannholdinu og var illt í því. En svo gerðist það þegar ég var kominn upp í mikla hæð að kýlið sprakk. Þá þurfti ég ekki að hafa meiri áhyggjur af þessu,“ segir hann og hlær.
Hann segir síðasta daginn hafa verið martraðarkenndan. Það er lagt af stað upp á topp á miðnætti. „Þá komum við upp á topp um svipað leyti og sólin kemur upp yfir slétturnar, það var yndisleg tilfinning að komast upp á toppinn. Ég settist þar niður og hugleiddi í stutta stund. Fékk reyndar ekki að gera það lengi, við þurftum brátt að halda niður aftur. Það er ekki hægt að dvelja lengi á toppnum. Það er hættulegt.
Tolli mælir með því að þeir sem vilja ganga upp á Kilimanjaro komi sér í sem best líkamlegt ásigkomulag áður en þeir leggja af stað.
„Það er best að æfa sig í því að ganga á fjöll. Ég myndi byrja á Esjunni, ég fer reglulega þangað og finnst það góð gönguleið. Það er líka gott að ganga á jafnsléttu því gangan upp á Kilimanjaro er jöfn og þétt. Mér sjálfum finnst líka mikið atriði að borða hollan mat og huga að andlegum styrk. Það geri ég með því að hugleiða.“




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?