Fyrirtækið sem býður upp á Burn Note segir skilaboðaþjónustuna vera fullkomlega örugga en gagnrýnendur hafa bent á að gögn sem fara í gegnum síðuna séu dulkóðuð og geymd í gagnagrunnum fyrirtækisins. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson
Ef þig hefur einhver tímann langað að vera hluti af njósnamynd ertu kominn skrefinu nær því með Burn Note. Jacob Robbins, fyrrverandi yfirmaður hugbúnaðardeildar Drop.io, hefur hrundið af stað nýrri þjónustu sem gerir notendum kleift að senda skilaboð sem eyða sér sjálf eftir lestur. Notendur geta sjálfir stillt hversu langan tíma viðtakandi skilaboða í gegnum þjónustu hefur aðgang að skilaboðunum, innan tímarammans ein til 32.767 sekúndur.
Skilaboðaþjónustan minnir óneitanlega á eitthvað úr njósnamynd þar sem skilaboðin brenna upp eða springa í loft upp eftir að viðtakandi þeirra er búinn að lesa þau. Þar sem Burn Note er einungis þjónusta sem veitt er í gegnum netið er ekki um neinar sprengingar að ræða heldur er skilaboðunum einfaldlega eytt út af vefþjóni fyrirtækisins.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Stjörnurnar þurfa ekki lengur að óttast að nektarmyndir leki á netið
Google má endurbirta það sem þú vistar á Google Drive
Pebble sigrar heiminn
Meira pláss fyrir minni pening
Nýi Galaxy kynntur
